Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. október 2024 18:39 Þyrlan var kölluð út á sjötta tímanum í dag. Vísir/Vilhelm Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í dag eftir að lögreglan á Austurlandi óskaði eftir aðstoð til að kanna hvort að tveir hvítabirnir leyndust á hálendinu við Laugarfell, norðaustan við Snæfell.
Þetta staðfestir Ágeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi. Tveir erlendir ferðamenn tilkynntu um hvítabirni „Þyrlan var fengin til að kanna þetta mál. Lögreglan á Austurlandi kallaði eftir þessu og þyrlan verður komin þarna um sjö og mun leita þarna á þessu svæði,“ segir Ásgeir en ítrekar að það sé með öllu óljóst hvort að hvítabirnir séu í raun á svæðinu. Tveir erlendir ferðamenn sem áttu leið um svæðið tilkynntu lögreglunni á Austurlandi að þau hafi séð tvo hvítabirni á gangi þar. Þetta staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við Vísi. Bendi ekkert til að um gabb sé að ræða Kristján segir að lögreglan sé búin að kanna umrætt svæði vel og vandlega og að engin ummerki um hvítabirni hafi fundist á svæðinu. Hann segir að þyrla Landhelgisgæslunnar muni skera úr um það hvort að það séu í raun og veru hvítabirnir á svæðinu. Aðspurður segir hann að það sé ekkert sem bendi til þess að um gabb sé að ræða. Kristján segir hins vegar að ekki sé hægt að útiloka að ferðamönnunum hafa missýnst. Yfirstandandi leit muni vonandi leiða það í ljós. Landsvirkjun er einnig með eftirlitsmyndavélar á svæðinu en ekki hefur sést til bjarndýra á upptökum Landsvirkjunar.
Hvítabirnir Landhelgisgæslan Fljótsdalshreppur Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira