Erling Haaland getur ekki hætt að skora í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði sína aðra þrennu í röð þegar lið Manchester City vann 3-1 sigur gegn West Ham í dag.
Fyrir leikinn gegn West Ham í dag var Erling Haaland búinn að skora fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði eitt í fyrsta leik liðsins gegn Chelsea og þrjú þegar liðið lagði Ipswich í síðustu umferð.
Hann hélt síðan bara áfram í dag. Norðmaðurinn kom City í 1-0 á tíundu mínútu eftir mistök Lucas Paqueta en heimaliðinu tókst reyndar að jafna metin í 1-1 þegar Ruben Dias skoraði sjálfsmark á 19. mínútu.
🔵🤖 Back to back hat-tricks for Erling Haaland!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 31, 2024
7 goals in Premier League… and it’s still August. pic.twitter.com/w9kShjp248
Sá norski var auðvitað ekki hættur. Hann skoraði frábært mark á 30. mínútu og kom þá City í 2-1 og fullkomnaði þrennuna í síðari hálfleik með góðu marki á 83. mínútu eftir sendingu Matheus Nunes. Lokatölur 3-1 og Manchester City komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar.
Erling Haaland er nú kominn með sjö mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni sem er vitaskuld met. Þá er hann búinn að skora 70 mörk í 69 leikjum sínum fyrir City í deildinni sem er ótrúleg tölfræði í einni af sterkustu deildum heims.
🔵🤖 70 goals in 69 Premier League games.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 31, 2024
This is Erling Haaland. pic.twitter.com/1ZsUhso9Du