Viðburðurinn var haldinn í samvinnu við danska ljósmyndarann og áhrifavaldinn Freju Wever sem er búin að vera vinkona merkisins í mörg ár. Hún myndaði nýju línuna í samstarfi við Issue Issue magazine og voru þær myndir til sýnis ásamt línunni sjálfri.

„Ég elska alltaf támjóa skó en við erum að koma með nokkur ný form fyrir vor/sumarlínuna 2025. Við erum að bæta við opnum svokölluðum nöktum skóm (e. naked shoe) og kork undirlagi í fyrsta skipið sem lítur út fyrir að vera mjög einföld hönnun en hún tók akkúrat ár í þróun.
Við erum líka að halda áfram að þróa og stækka töskulínuna okkar þar sem þær hafa fengið mjög góðar viðtökur og erum að bæta við 4 nýjum stílum fyrir SS25. Við ætlum svo að fagna línunni líka hér heima á fimmtudaginn á 101 Hótel frá 16:00 til 18:00 og er viðburðurinn opinn öllum,“ segir Katrín Alda.
KALDA skórnir hafa verið vinsælir víða um heim í dágóða stund og sést á súperstjörnum á borð við leikkonuna Emmu Corrin, súperskvísunni Juliu Fox, ofurfyrirsætu systrunum Bellu og Gigi Hadid og svo lengi mætti telja.
Hér má sjá vel valdar myndir frá tískuteitinu:













