Komi heim úr fjölskyldufríinu með laskað mannorð og kvenhylli Eiður Þór Árnason skrifar 28. júlí 2024 13:58 Fjölskyldan var hvött til að framlengja ferðina til að hjálpa fólki heimafyrir að komast í gegnum gráa íslenska sumarið. Tiktok/thordisbjork Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV.is segist snúa heim úr ferð fjölskyldunnar til Ítalíu með laskað mannorð og hugsar systur sinni þegjandi þörfina. Ferðalag sautján manna stórfjölskyldunnar hefur dregið dilk á eftir sér. „
Þrjóturinn hún systir mín hefur nú deilt sinni reynslu af fjölskyldufríi stórfjölskyldunnar, eitthvað sem ég taldi að yrði afslappandi og rólegt sumarfrí. Annað kom á daginn.“ Í stað þess hafi hann óaðvitandi tekið þátt í framleiðslu raunveruleikasjónvarps án þess að veita fyrir því tilskilin leyfi. Vísar hann þar til fjölda vinsælla myndskeiða sem Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, leikkona og tónlistarkona deildi með fylgjendum sínum. Í myndböndunum sem hafa náð mikilli útbreiðslu á samfélagsmiðlunum Tiktok og Instagram tekur Þórdís fjölskyldumeðlimi sína fyrir og teiknar upp skýra mynd af meintum hegðunareinkennum þeirra. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og kepptist fólk við að óska eftir því að fá frekari innsýn inn í ferðalag þessarar líflegu fjölskyldu. Dvöldu systkinin, foreldrar, makar og börn saman í húsi í Umbria-héraði á Ítalíu. @thordisbjork Þetta er ADHD Bjössi. Það er ekki gaman að spila við ADHD Bjössa. 😊 #fyp #íslenskt #islensktiktok #ísland #fyrirþigsíða #fyndið #italy #ADHDbjössi ♬ Che La Luna - Louis Prima „Í myndböndum hennar mátti sjá fjölskylduna að mestu leyti í sínu rétta ljósi enda erum við allt annað en eðlilegur hópur. Rúmlega helmingurinn sennilega með einhverjar greiningar og hinn helmingurinn í afneitun,” skrifar Björn í Facebook-færslu en hann líkt og önnur viðfangsefni Þórdísar hlaut um leið nýtt viðurnefni. Björn lýsir því hvernig hann hafi eftir heimkomu verið stöðvaður úti á skemmtanalífinu og í verslunarferðum af fólki sem vilji vita hvort væri um sé að ræða hinn nú víðfræga „ADHD-Bjössa.“ Eitt vinsælasta myndskeið Þórdísar sýnir Aðalheiði Bragadóttur, móður systkinanna gæða sér á hverjum áfenga drykknum á fætur öðrum í sólinni og klykkja út með frasanum: „Mikið rosalega verður maður kærulaus í þessum hita.“ @thordisbjork Kæruleysiskonan 🫡 #kæruleysiskonan #fyp #fyrirþig #íslenskt ♬ original sound - Dísa Móðir þeirra komin í felur „Móðir mín var virtur skólastjórnandi fyrir ferðina en hefur við heimkomuna breyst í eina alræmdustu drykkjukonu landsins, Kæruleysiskellinguna,” segir Björn og tekur upp hanskann fyrir foreldra sína, bróður og mág sem fóru með aðalhlutverk í verkum Þórdísar. Dugaði athyglin til þess að Aðalheiður varð til umfjöllunar í frétt Vísis sem Björn telur „sennilega kornið sem fyllti mælinn, kæruleysið vék fyrir vonleysinu. Fagur rautt aperólið vék fyrir biksvörtu romm í kók.” „Móðir mín fer nú huldu höfði, fékk sýrlenskan innblástur og breytti nafninu sínu í Þóra Jóhannesdóttir og mun ekki snúa tilbaka fyrr en þessi martröð er yfirstaðin,” bætir hann skoplega við og vísar þar til frægrar nafnabreytingar Mohamad Kourani eftir að hann var sakfelldur. Einn með pöddufælni og annar með fóbíu Þórdís beindi sömuleiðis sjónum sínum að skordýraáhuga og hrekkjalómahegðun föður síns, flugufælni unnustans Júlí Heiðars Halldórssonar, spilaæsingi Björns og áfengisdrykkju bróður þeirra. Hefur Björn áhyggjur einkum af mannorðsmissi „flugumannsins“ Júlí Heiðars „sem með einhverjum rosalegustu flóttatilburðum í sögu Ítalíuskagans náði að festa sig í sessi sem helsta kveif landsins.” @thordisbjork Þessi maður þarf að komast í dáleiðslu. 🐝🐝 @Júlí Heiðar #fyp #íslenskt #islensktiktok #ísland #fyrirþigsíða #italy #ferðalag ♬ Che La Luna - Louis Prima Notið aukinnar kvenhylli Björn segir það ljós í myrkrinu að athyglinni virðist fylgja aukin kvenhylli þar sem systur hans hafi borist ítrekaðar fyrirspurnir um það hvort hann sé á lausu. Hann er þó vel giftur Kristínu Erlu Jóhannsdóttur sem hann segir hafa litlar áhyggjur af meintum auknum áhuga kvenpeningsins. „Gott ef það örlaði ekki á smá létti og sennilega blundar í henni von um útgönguleið úr þessum aldarfjórðungsógöngum sem hún kom sér í.“ Björn segir að á meðan sumir fjölskyldumeðlimir megi muna fífil sinn fegri hafi Þórdís bætt við sig þúsundum fylgjenda á samfélagsmiðlum með útsendingum sínum. Óttast hann að hún skipuleggi nú aðra fjölskylduferð svo hún geti haldið áfram að níða af þeim skóinn. @thordisbjork Paddan hans pabba 🥹 #fyp #íslenskt #islensktiktok #ísland #fyrirþigsíða #fyndið #ferðalag #italy ♬ original sound - Bostonian122266 Biður foreldra sína afsökunar Þórdís gerir ferðina og myndböndin einnig að umtalsefni í eigin færslu á Facebook-síðu sinni og biður foreldra sína afsökunar. „Pöddupabbi, ADHD Bjössi, Kæruleysiskonan og Flugumaðurinn voru t.d. allt karakterar í þessum skrípaleik sem þessi Ítalíuferð var. Mamma mín, sem fær sér örsjaldan vín, er allt í einu orðin talskona dagdrykkju í sólinni og á setningu sumarsins: “Maður verður svo kærulaus í þessum hita”. Pabbi minn, sem vill helst lifa í kyrrþey, er einhver annálaður hrekkjalómur og skordýraáhugamaður og er kominn með drullu gott fan base á samfélagsmiðlum. Sorry með það mamma og pabbi. En þetta er bara brota brot af því sem þessi ferð gaf af sér.“ Sjá má nokkur af umræddum myndskeiðum Þórdísar í Facebook-færslu hennar.
Samfélagsmiðlar Ítalía Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Kæruleysiskonan slær í gegn á samfélagsmiðlum „Mikið rosalega verður maður kærulaus í þessum hita,“ segir Aðalheiður móðir Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leikkonu gjarnan í myndbandi sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum hinnar síðarnefndu. 23. júlí 2024 10:23 Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Bob Mackie er látinn Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira
Kæruleysiskonan slær í gegn á samfélagsmiðlum „Mikið rosalega verður maður kærulaus í þessum hita,“ segir Aðalheiður móðir Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leikkonu gjarnan í myndbandi sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum hinnar síðarnefndu. 23. júlí 2024 10:23