Um ágreining milli landeiganda í Rangárþingi ytra er að ræða.
Fyrr í dag greindi Vísir frá því að sérsveitin hefði verið kölluð á vettvang. Karl Rúnar Ólafsson ábúandi í Háfshverfi í sagði í samtali við Vísi að nágrannar hans hefðu ógnað vinnumanni á gröfu með byssu og hleypt af skotum. Hvorki aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi né upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra hafa staðfest nokkuð í þeim efnum.
Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi staðfestir hins vegar að tveir hafi verið handteknir í aðgerðunum.
„Þeir verða færðir til yfirheyrslu á einhverjum tímapunkti,“ segir Þorsteinn sem getur ekki sagt nánar til um hvenær það verður.
Að öðru leyti vildi Þorsteinn lítið tjá sig um málið. Lögreglan á Suðurlandi hefur lokið aðgerðum á vettvangi.
„Við erum bara að rannsaka þetta núna,“ segir Þorsteinn. Hann gat ekki sagt til um hvað mennirnir væru grunaðir um á þessum tímapunkti.