„Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Jón Þór Stefánsson skrifar 28. maí 2024 19:21 Aron Matthíasson hefur dvalið á sjúkrahúsi í Bangkok í kjölfar slyssins en útskrifaðist í gær. Aron Aron Matthíasson var á leið í vinnuferð á vegum Marels til Nýja Sjálands fyrir viku síðan þegar flugvélin sem hann var í, sem var á leið frá London til Singapúr, lenti í mikilli ókyrrð sem varð til þess að einn lést og tugir slösuðust. „
Flugið sjálft var búið að vera mjög stöðugt og fínt alla leiðina. Þegar það voru um það bil þrír tímar eftir af fluginu ákvað ég að standa upp og sækja bakpokann minn sem var í farangursrýminu fyrir ofan mig,“ segir Aron í samtali við fréttastofu. „Þegar ég var búinn að því settist ég niður og fann strax, að það væri smá ókyrrð í vélinni, en alls ekki mikið. Ég hugsaði strax að það væri gott að spenna sig, enda er ég yfirleitt alltaf spenntur. Þannig ég gríp um beltið, en um leið finn ég svaðalegt högg og ég dúndrast upp,“ segir hann. „Fyrirvarinn var í rauninni enginn.“ Fannst atvikið vandræðalegt áður en hann áttaði sig Aron, sem var í sæti við gang flugvélarinnar, skall með höfuðið upp í farangurrsrýmið fyrir ofan sig, rotaðist, og féll á gólfið. „Ég ranka við mér á gólfinu. Ég lít upp og í fyrstu sýndist mér ég vera sá eini sem var ekki í sætinu mínu.“ Hann hafi hugsað með sér: „Þetta er frekar vandræðalegt Aron.“ Hann taldi þetta líta út eins og hann hefði dottið úr sætinu sínu, en þá hafi hann ekki fundið fyrir neinni ókyrrð. „Ég ætlaði að drífa mig aftur í sætið mitt án þess að nokkur sæi það, en áttaði mig þá á því að ég hafði ekki dottið úr sætinu mínu. Ég átti mjög erfitt með að standa upp og með andadrátt. Og svo sé ég að ég hafði greinilega mölbrotið farangurshólfið sjálft. Þannig þetta hefur verið ágætis högg.“ Seinna fékk Aron að vita að ókyrrðin stóð yfir í þrjár mínútur, en fyrir honum voru þetta örfá sekúndubrot. „Ég missti af þessum hamagangi sem betur fer held ég.“ Skrýtið andrúmsloft Eftir ókyrrðina sló á þögn í vélinni. Að sögn Arons var andrúmsloftið skrýtið. „Það var eins og allir væru í smá sjokki. Það var eins og fólk vissi ekki hvernig það ætti að athafna sig. En svo stuttu seinna fór þetta að verða eins og maður hefur séð í bíómyndum: fólk fór að kalla eftir lækni og annar hver maður var með skurð á höfðinu. Það var mikil hræðsla sem fór um mannskapinn.“ Fjölskylda Arons kom á sunnudag og dvelur með honum þangað til hann snýrt aftur heim.Aron Ekki leið á löngu þangað til farþegum vélarinnar var tilkynnt um að lent yrði í Bangkok vegna alvarlegra meiðsla fjölda farþega. Þar hafi raðir sjúkrabíla beðið þeirra. Aron telur að þrjátíu til fjörutíu heilbrigðisstarfsmenn hafi farið inn í vélina eftir lendinguna sem tóku skýrslu af hverjum og einum. Ætlaði ekki að fá hjálp í fyrstu „Ég ætlaði í rauninni ekki að fá neina hjálp. Ég hélt að ég væri bara með smá hálsríg og að ég væri í smá sjokki. Ég hringdi í pabba og sagði honum að það væri verið að finna nýtt flug til Singapúr, og ég myndi sennilega sofa þar og vera góður daginn eftir. En sem betur fer heyrði ég líka í móður minni sem sagði að ég þyrfti að láta kíkja á mig.“ Í ljós kom að Aron var þríbrotinn á einum hálshryggjarlið og með þrjú rifbein brotin. Þessi beinbrot séu öll tiltölulega hrein. „Ég er gríðarlega heppinn að ekki fór verr. Eins og staðan er núna þarf ég ekki í aðgerð. Þetta á að geta gróið sjálft. Aron er þríbrotin á einum hálshryggjarlið og með þrjú rifbein brotin.Aron Aron er mjög þakklátur ástralskri konu sem sat við hliðina á honum í vélinni. Hún var sofandi í belti þegar ókyrrðin átti sér stað. „Hún hjálpaði mér mjög mikið. Studdi mig, hjálpaði mér úr vélinni og tók dótið mitt.“ Væri líklega ekki tilbúinn að fljúga hefði hann ekki misst meðvitund Aron hefur í kjölfar slyssins dvalið á sjúkrahúsi í Bangkok, en útskrifaðist í gær og er nú á hóteli. Þar er hann í boði Singapore Airlines, flugfélagsins sem hann var að fljúga með. Flugfélagið borgaði fyrir ferð fjölskyldu Arons út til hans í Bangkok og hún dvelur þar með honum. Hann segist mjög ánægður með viðbrögð heilbrigðisstarfsfólks og flugfélagsins. Nú safnar Aron kröftum og þreki til þess að komast aftur til Íslands. „Ég missti af hræðslunni á meðan ókyrrðin stóð yfir. Ég hugsa að ég væri ekki tilbúinn að fljúga í dag hefði ég upplifað hana.“
Fréttir af flugi Marel Singapúr Íslendingar erlendis Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira