Innlent

Harðari orð­ræða um út­lendinga stilli VG upp við vegg

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá kynningu nýrrar ríkisstjórnar í Hörpu.
Frá kynningu nýrrar ríkisstjórnar í Hörpu. vísir/vilhelm

Harðari orðræða formanns Sjálfstæðisflokksins í garð útlendinga, sér í lagi hælisleitenda, stillir Vinstri grænum upp við vegg. Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor að loknum opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í kjölfar hrókeringa innan ríkisstjórnar.

Í þeim hrókeringum situr Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins uppi sem forsætisráðherra. Á fundinum í dag lagði hann mikla áherslu á útlendingamálin og boðar raunsæja stefnu og harðari reglur. 

Eiríkur ræddi þessi mál í kvöldfréttum Stöðar 2.

„Við erum á leiðinni inn í kosningar, hvort sem stjórnin lifir út kjörtímabilið eða það slitni upp úr þessu fyrr. Það er að minnsta kosti kosningabragur að færast yfir alla pólitíkina í landinu.“

Ómögulegt sé að segja til um hvort ríkisstjórnin lifi út kjörtímabil. 

„Hvernig Vinstri grænir muni finna sig í samstarfinu undir nýrri forystu verður bara að koma í ljós. Það er líklegt að það komi upp mál sem reynast erfið. Það kannski þarf minna að koma upp, eftir því sem lengra dregur, til að valda vandræðum.“

Eftirtektarverð orðræða

Bjarni lagði eins og áður segir mikla áherslu á útlendingamál. Eiríkur segir formanninn hafa fært flokkinn markvisst í átt að harðari orðræðu í garð innflytjenda, sér í lagi hælisleitenda. 

„Hann virðist líta svo á að þetta sé stórt mál í stjórnmálum dagsins. Það hefur að vísu ekki verið mikil umræða undanfarið, nokkuð meiri fyrir einhverjum mánuðum síðan.  En þetta er mjög eftirtektarvert og setur Vinstri græna upp við vegg, myndi ég halda,“ segir Eiríkur Bergmann.

Hægrimenn ánægðir með útspil Katrínar

Um 36 þúsund manns hafa nú skrifað undir undirskriftalista á island.is þar sem  skiptingu Bjarna í forsætisráðuneytið er mótmælt. Eiríkur var spurður hvort leið Katrínar úr stjórnmálunum geti haft áhrif á gengi hennar í komandi forsetakosningum.

„Ég hugsa að það geti haft áhrif. Það eru allaveg tvær hliðar á þessu máli. Önnur er sú að fylgisfólk hennar vinstra megin, sér í lagi Vinstri grænum, kann að vera ósátt við það að hún hafi leitt, þann sem er hefðbundinn höfuðandstæðingur flokksins, til forsætis í landinu. Það gæti skaðað hana þeim megin.

Á hinn bóginn sækir hún verulegt fylgi til hægri vængsins og til kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Þeir hljóta að vera ánægðir með þetta.“


Tengdar fréttir

Vill raunsærri stefnu í útlendingamálum

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir mikilvægt að taka stjórn á landamærum Íslands. Hann ætlar að leggja áherslu á útlendingamálin út kjörtímabilið og boðar raunsæja stefnu í þeim og harðari reglur.

„Minn tími er ekki búinn“

Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, segist sannarlega hafa fengið sinn skerf af skoðunum frá sjálfskipuðum sérfræðingum. Hann reyni að láta þær ekki trufla sig og í mörg ár hafi rödd innra með honum sagt að „hans tími væri ekki búinn.“ Þó sé mikilvægt að svara fyrir sig á málefnalegum nótum en ekki með sleggjudómum eða netárásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×