Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist
![Hlutabréfaverð Alvotech hefur fallið skarpt síðustu daga og á tímabili var nánast öll gengishækkun ársins búin að þurrkast út. Í dag og á morgun, fimmtudag, hafa lykilstjórnendur Alvotech og ráðgjafi félagsins, Barclays, boðað til funda með hlutabréfafjárfestum í Boston og New York.](https://www.visir.is/i/2B572015ED065BE72F8C13CCFF1F940332B3D8446EE083A3A7329AD348737211_713x0.jpg)
Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/721E607821B202E5B2955E285B139D6EFE1EE39E408A7493B6CE6A5076BF0B29_308x200.jpg)
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA
Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims.
![](https://www.visir.is/i/AFEFE19886AEA337ED0C4815525B68CFBF725247F32F6521101AE5D27D363E57_308x200.jpg)
Félag Róberts seldi breytanleg bréf á Alvotech fyrir um milljarð
Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra.
![](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_308x200.jpg)
Búast við talsverðum greiðslum á næstu vikum vegna nýrra samstarfsamninga
Stjórnendur Alvotech, sem sá lausafé sitt minnka um meira en 110 milljónir dala á þriðja fjórðungi samhliða miklum fjárfestingum, segjast vera í viðræðum við lyfjafyrirtæki um samstarfssamning vegna líftæknilyfjahliðstæðna í þróun hjá félaginu sem geti skilað sér í talsverðum greiðslum undir lok árs. Dræmar sölutekjur ollu vonbrigðum en Alvotech fullyrðir að þær muni taka við sér á yfirstandandi ársfjórðungi þegar lyfin eru hlutfallslega seld meira á mörkuðum þar sem verðlagningin á þeim er hærri.