Óvissa um útboð næsta áfanga á Dynjandisheiði Kristján Már Unnarsson skrifar 7. mars 2024 12:12 Hluti verksins er kaflinn af Dynjandisheiði og niður í Dynjandisvog. Þarna verður mesta breytingin á veglínu en hún fylgir að öðru leyti núverandi vegstæði að mestu. Vegagerðin Útboð þriðja áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði er í óvissu. Til stóð að bjóða verkið út í febrúar en núna fást óljós svör frá Vegagerðinni um hvort búið sé að fresta útboðinu og hve lengi því muni seinka.
Lokaáfanginn á leiðinni milli Flókalundar og Dynjanda er kaflinn milli Dynjandisvogar og sýslumarka á heiðinni. Samkvæmt svari sem fréttastofan fékk í janúar frá Vegagerðinni var stefnt á útboð þessa áfanga núna í febrúar. Miðað var við að framkvæmdir gætu hafist í vor og að verklok gætu orðið sumarið 2026. Leiðin um Dynjandisdal. Veglínan þar fylgir að mestu núverandi vegi.Vegagerðin Þegar fréttastofan spurðist fyrir um það hversvegna ekki væri búið að auglýsa útboðið, hvort búið væri að fresta útboðinu og þá hve lengi fékkst eftirfarandi svar frá upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar: „Þetta er svo sem allt í vinnslu en útboðið verður ekki alveg strax,“ svaraði G. Pétur Matthíasson. -Hvenær má búast við að þessi áfangi verði boðinn út? Hver er ástæðan fyrir frestun? „Get ekki sagt á þessari stundu hvenær verður boðið út, þau mál eru enn til skoðunar hér innanhúss og ekki komin niðurstaða,“ svaraði upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Svona verða gatnamótin að fossinum Dynjanda. Til vinstri sést hvernig vegurinn verður lagður upp úr Búðavík í Dynjandisvogi. Til hægri sést veglína upp Dynjandisdal.Vegagerðin Í yfirliti sem birt var þann 1. mars á heimasíðu Vegagerðarinnar um stöðu framkvæmda á Vestfjarðavegi segir að vonast sé til að þriðji og síðasti áfanginn á Dynjandisheiði verði boðinn út fyrir lok árs. Vinnu Suðurverks við annan áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði miðar vel og segir Vegagerðin stefnt að því að verkinu verði lokið um miðjan júlí í sumar. Fari svo að útboð næsta áfanga frestist að ráði þýðir það að samfella í verkinu rofnar. Leiðin upp Dynjandisdal meðfram Svíná.Vegagerðin Á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit hóf Borgarverk í lok janúar vinnu við nýjan vegarkafla við Skálanes og niður að sjó við Melanes. Í framhaldi verður farið í sjávarfyllingar í Gufufirði og svo byggingu bráðabirgðabrúar yfir Gufufjörð. Verklok þessa áfanga eru áætluð í lok september 2025. Þetta er fyrsti áfangi í þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Í yfirlitsfrétt sinni segist Vegagerðin vonast til að hægt verði að bjóða út smíði brúanna síðla þetta ár. Stöð 2 kynnti sér framkvæmdir Suðurverks á Dynjandisheiði síðastliðið haust og sýndi þá þessa frétt:
Vegagerð Samgöngur Ísafjarðarbær Vesturbyggð Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umferðaröryggi Byggðamál Tengdar fréttir Bæjarstjórn kaus milliveginn sem vegstæði við Dynjanda Niðurstaða virðist fengin um hvernig Vestfjarðavegur verður lagður við fossinn Dynjanda en tekist var á um tvær mismunandi veglínur í gegnum friðlandið. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar valdi að fara milliveginn. 23. nóvember 2022 21:21 Nýr kafli með bundnu slitlagi að opnast á Dynjandisheiði Stefnt er að því að nýr vegarkafli á Dynjandisheiði með bundnu slitlagi verði tekinn í notkun eftir næstu helgi. Kaflinn er 3,5 kílómetra langur og liggur um hæsta hluta fjallvegarins milli núverandi slitlagsenda við Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og Vatnahvilftar neðan Botnshests ofan Geirþjófsfjarðar. 24. október 2023 18:15 Áfangar að nást í krefjandi vegagerð á Dynjandisheiði Vegagerð um hæsta hluta Dynjandisheiðar er einhver sú erfiðasta hérlendis um þessar mundir. Verkinu miðar þó vel og er hugsanlegt að umferð verði hleypt á hluta nýja vegarins fyrir veturinn. 18. september 2023 21:41 Lægsta boð í Vestfjarðaveg langt undir kostnaðaráætlun Tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, vegfyllingu yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag og reyndist lægsta boð aðeins 74 prósent af kostnaðaráætlun. Brúin yfir Þorskafjörð verður tekin í notkun síðar í þessum mánuði, átta mánuðum á undan áætlun. 12. október 2023 21:10 Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. 18. júlí 2023 23:33 Dynjandisheiði ekki í útboð á þessu ári vegna fjárskorts Vegagerðin hefur fallið frá því að bjóða út stærsta áfanga nýs vegar yfir Dynjandisheiði í sumar þar sem ekki eru til peningar í verkið. Áformað er þó að bjóða út næsta áfanga vegagerðar um Gufudalssveit í haust. 24. júní 2021 22:11 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira
Bæjarstjórn kaus milliveginn sem vegstæði við Dynjanda Niðurstaða virðist fengin um hvernig Vestfjarðavegur verður lagður við fossinn Dynjanda en tekist var á um tvær mismunandi veglínur í gegnum friðlandið. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar valdi að fara milliveginn. 23. nóvember 2022 21:21
Nýr kafli með bundnu slitlagi að opnast á Dynjandisheiði Stefnt er að því að nýr vegarkafli á Dynjandisheiði með bundnu slitlagi verði tekinn í notkun eftir næstu helgi. Kaflinn er 3,5 kílómetra langur og liggur um hæsta hluta fjallvegarins milli núverandi slitlagsenda við Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og Vatnahvilftar neðan Botnshests ofan Geirþjófsfjarðar. 24. október 2023 18:15
Áfangar að nást í krefjandi vegagerð á Dynjandisheiði Vegagerð um hæsta hluta Dynjandisheiðar er einhver sú erfiðasta hérlendis um þessar mundir. Verkinu miðar þó vel og er hugsanlegt að umferð verði hleypt á hluta nýja vegarins fyrir veturinn. 18. september 2023 21:41
Lægsta boð í Vestfjarðaveg langt undir kostnaðaráætlun Tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, vegfyllingu yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag og reyndist lægsta boð aðeins 74 prósent af kostnaðaráætlun. Brúin yfir Þorskafjörð verður tekin í notkun síðar í þessum mánuði, átta mánuðum á undan áætlun. 12. október 2023 21:10
Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. 18. júlí 2023 23:33
Dynjandisheiði ekki í útboð á þessu ári vegna fjárskorts Vegagerðin hefur fallið frá því að bjóða út stærsta áfanga nýs vegar yfir Dynjandisheiði í sumar þar sem ekki eru til peningar í verkið. Áformað er þó að bjóða út næsta áfanga vegagerðar um Gufudalssveit í haust. 24. júní 2021 22:11