Skoðun

Minningar­orð um Reykja­vík

Júlíus Viggó Ólafsson skrifar

Útför Reykjavíkur var haldin hátíðleg í Tjarnarbíó laugardaginn 17. febrúar. Eftirfarandi er ræða sem formaður Heimdallar flutti í athöfninni:

Kæru gestir, verið innilega velkomnir í útför Reykjavíkur í Tjarnarbíó. Þessi viðburður er haldinn af Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík til minningar um ástkæru borgina okkar, sem eftir áraraðir af vanrækslu er nú látin. Við bjóðum ykkur að minnast hennar með okkur á þessari stundu og minnum jafnframt á að samveran og gleðin sigrar alltaf að endingu.

Ég vil nota tækifærið og rifja upp falleg orð Jóhanns Helgasonar:

Ætíð mun ég elska þig

bæði ár og síð

og ef þú vilt

eiga mig

glöð ég gjarnan bíð

Lífið kemur

lífið fer

veldur gleði og sorg

heit af ástum ein ég er

í Reykjavíkurborg

(Staldrað við um stund)

Koma tímar

koma ráð,

segir máltækið

Þá ég bara

bíða má

í Reykjavíkurborg

Ó, ef ég fengi

falið þér

mína miklu ást

oki yrði létt af mér

ég þyrfti ei meira að þjást

ég þyrfti ekki að líða þrá

og bera út á torg

mína einu sönnu ást

í Reykjavíkurborg

Koma tímar

koma ráð

segir máltækið

á meðan ein ég

bíða má

í Reykjavíkurborg

Komdu til mín

komdu fljótt

beðið get ég ei

árin líða svo

undur skjótt

segðu ekki nei

Hvort ástin láti bjóða sér

allt og hvað sem er

er nú orðin eilífleg

spurn á vörum mér

Einn þú hefur

svarið við

minni ástarsorg

Löng er orðin þessi bið

í Reykjavíkurborg

Orð í tíma töluð.

Reykjavík fæddist árið 874 og varð því næstum 1150 ára gömul. Á löngu og viðburðaríku æviskeiði hennar hefur hún skipað sér sess djúpt í hjörtum landsmanna. Við minnumst hennar eins og hún var, við munum það fallega en einnig það sem var miður. Saga hennar var saga framfara, þrautseigju, og sköpunargleði. Ímynd hennar var ávallt varlega framsett, þótt undir yfirborðinu hafi leynst erfiðleikar.

Reykjavík var ekki án vandamála, ekkert okkar er það. Hún var þjökuð af óábyrgri hagstjórn, óstundvísari sorphirðu, óaðgengilegum húsnæðismarkaði, og óendanlega löngum biðlistum eftir leikskólaplássi.

Reykjavík þótti alltaf mjög vænt um miðsvæðið sitt, og sótti bæði einkaþjálfun hjá Gumma Emil og hnykkingar hjá Gumma Kíró til að miðsvæðið væri í góðu ásigkomulagi.

Og það verður bara að viðurkennast að Reykjavíkurborg leit vel út um miðsvæðið þegar hún dó. En það skiptir meira máli en bara miðsvæðið.

Og það skiptir engu máli hvernig þú lítur út ef þú ert dauðvona. Ef þú ert með ónýtt miðtaugakerfi, krónískan niðurgang, og heilaskaða, þá deyrðu alltaf á endanum.

En falleg var hún, víkin sú.

Oft er talað um hina fjólubláu drauma sem útsýni hennar var, Akrafjall og Skarðsheiði.

Hún var svo sannarlega falleg.

Gleði alltaf gaf hún minni sál,

gamla borgin tendrar ástarbál.

En hvað stendur eftir kæra fólk?

Og við skulum aldrei leyfa okkur að gleyma því góða sem Reykjavík gaf okkur.

Perlufestin sem Davíð gaf Reykjavík þegar ástarsamband þeirra stóð sem hæst er þarna enn, og er okkur minnisvarði um það sem hægt er að gera þegar hugsjónir fá að lifa.

Við Tjörnina stendur heimili Reykjavíkur enn, og þó formenn húsfélagsins þar eru einskis nýtir mun það aldrei vera tekið af Reykjavík að eitt sinn var hún stórfengleg. Eitt sinn var hún borg draumanna. Fjólublárra drauma.

Borgin hefur aldrei verið eins, og þú hefur ekkert breyst. Ég hef ekkert breyst. Reykjavík er mín. Sátum hér í gær. Ástin aldrei verið nær.

Það er á stundum sem þessum þar sem mikilvægt er að elska og muna hvað Reykjavík hafði að geyma. Og stundirnar sem við áttum með Reykjavík og þeim sem við elskum:

“Reykjavíkurnætur minna mig ennþá á þig

(Ég ætla dansa, gleyma þér og dansa)

Í rauðum kjól í röð á staðnum sem við hittumst fyrst

(Ég ætla dansa, gleyma þér og dansa)”

- Sigga Ózk

Já kæri söfnuður.

Á stundum sem þessum er gott að muna það góða. Og það eru góðu stundirnar hérna inni (bent á hausinn) sem koma okkur í gegnum þær slæmu sem við eigum hérna inni (bent á hjartað).

Kæru gestir við bjóðum ykkur að minnast hennar, þiggja veitingar, og hlusta á ljúfa tónlist með okkur í kvöld. Að viðburði loknum biðjum við ykkur að taka þátt í kertaathöfn til minningar um Reykjavík, síðan hvetjum við gesti til að halda út í nóttina og minnast hennar með sínum eigin hætti.

Höfundur er formaður Heimdallar.




Skoðun

Sjá meira


×