Báðir tvíburarnir enduðu í eldavélum Jakob Bjarnar skrifar 23. janúar 2024 11:29 Ingvi í Rafha til vinstri og Ágúst bróðir hans til hægri. Þeir eru báðir fjallhressir og eru að fara að halda upp á áttatíu ára afmæli sitt. Geri aðrir betur. aðsend 29. janúar 2024 fagna tvíburarnir Ágúst Ingiþórs og Ingvi Ingiþórs Ingasynir áttatíu ára afmæli sínu en í sitthvoru landinu.
Ingvi, sem lengstum hefur verið kenndur við Rafha, segir langlífi bæði í föður- og móðurætt og hann sér fram á bjarta daga. „Ég er mikið að ferðast og leika mér. Er bara að þvælast um heiminn. Spái mikið í stjórnmálin. Og heilsan er góð. Ég hef reyndar ekki stundað íþróttir mikið en í gamla daga var ég að losa gáma. Var þá að taka á honum stóra mínum og var kannski að lyfta 70 kílóa þvottavélum uppá þriðju hæð. Þetta var mitt World Class í þrjátíu ár,“ segir Ingvi. Hann segir að eftir að hafa losað gáma hafi hann verið uppgefinn og reynt á alla sína vöðva. „Ég var á launum við að taka mig í gegn. Ég segir ekki að það hafi verið skipulagt, en svona var þetta.“ Sérkennileg tilviljun Tilviljun hagaði því svo að báðir tvíburarnir fóru að fást við eldavélar en í sitthvoru landinu. „Já, það er þannig að við erum sjómannssynir úr Keflavík. Hann Gústi fór þá leið að vinna með pabba í sjómennskunni. Ég fór í tæknifræðina og endaði í Rafha. Hann endar hjá Electrolux.“ Ingvi segir það mega heita sérkennilega tilviljun að báðir lentu í hliðstæðu starfi. Gústi bróðir hans lauk Stýrimannaskólanum 1975 og gekk þá inn í útgerð föður síns. Saman sóttu þeir feðgar sjóinn á Erling KE 20 í nokkur ár. „Upp úr 1976 flutti Ágúst til Noregs með tilvonandi eiginkonu sinni. Hann hóf nám í radiotæknifræði og lauk því með ágætum. Að námi loknu hóf Ágúst störf hjá Electrolux í Noregi sem fólst aðallega í stjórn vélmenna. Verksmiðjan var lögð niður upp úr 2006 vegna harðar samkeppni við austur blokkirnar sem voru að ganga inn í Evrópusambandið. Starfslok voru því hjá fyrirtæki sem framleiddi loftræstikerfi sem nýttu endurnýjanlega orku.“ Tilviljun réði því að Ingvi lenti hjá Rafha Ingvi fór hins vegar á námssamning í rennismíði hjá Vélsmiðjunni Óðni í Keflavík og lauk sveinsprófi 1965. Þaðan lá leiðin í undirbúningsdeild Tækniskóla Íslands, sem var nýstofnaður, 1966 og lauk fyrrihluta námi í tæknifræði. Í framhaldi hóf Ingvi nám í Tækniskóla Álaborgar 1968 og útskrifaðist sem véltæknifræðingur 1971 sem aðalfag straumvélar eða túrbínur. „Það er svo haustið 1971 sem ég byrjaði hjá Raftækjaverksmiðjunni í Hafnarfirði eða Rafha og starfaði sem véltæknifræðingur og aðstoðarforstjóri næstu átta árin með þáverandi forstjóra Axel Kristjánssyni, en hann féll frá í júní 1979. Það var tilviljun að ég byrjaði hjá Rafha því ég gat valið um störf, nýkominn úr námi.“ Ingvi tók við forstjórastarfinu 1979 og gegndi því til 1989 en þá var grundvöllur brostinn og innlend framleiðsla gat engan veginn borið sig. Íslenska ríkið, sem átt 33 prósenta eignarhlut í Rafha en það var að undirlagi Eysteins Jónssonar, hafði ekki áhuga á breyttri starfsemi. „Í byrjun árs 1990 náðust samningar milli mína og stjórn Rafha um sölu á lager og nafni Rafha með því skilyrði að nýja félagið Rafha ehf. annaðist ábyrgðaþjónustu við eigendur tækja sem keyptu voru í Rafha. Ég starfaði sem framkvæmdastjóri til 2016. Nú er ný kynslóð tekin við stýrinu. Börnin mín þrjú. Egill Jóhann sem framkvæmdastjóri, Sólveig Heiða sem bókari og gjaldkeri og Kristinn Þór sem stjórnaformaður.“ Sáttur við starfslokin Ingvi segir systkinin fimm og öll eru þau við góða heilsu. Ákveðið hafi verið að Gústi bróðir hans héldi sína afmælisveislu í Noregi, með sinni stórfjölskyldu. „En hann verður gestur minn á laugardaginn. Þegar við urðum sjötugir héldum við veisluna saman. Í Rafha. Sem var gaman. Nú er ég að ljúka lífsstarfinu með því að hóa saman mínu fólki og samstarfsmönnum.“ Ingvi er sáttur þegar hann lítur yfir farinn veg. „Ég hef lent í áföllum eins og flestir og unnið mig út úr þeim. Svo náttúrlega urðum við illa úti í hruninu sem er kafli útaf fyrir sig. Svo var reksturinn oft erfiður í verðbólgunni. Svakalegar breytingar í efnahagsmálum, ýmist í ökla eða eyra. Hundrað og tíu prósenta verðbólga í tíð Steingríms Hermannssonar. Og svo önnur sveifla þegar Gunnar Thoroddsen var forsætisráðherra. Þá vorum við að tala um þriggja stafa tölu í verðbólgunni.“ Ingvi segir það ekki hafa verið neitt grín að búa við þau ósköp. Og skuldastaðan hafi verið erfið eftir hrun 2008. „En 2015 til 2016 fór að birta til og það hefur verið góður gangur í þessu síðustu árin. Nú eru börnin að taka við þessu. Ég laus allra mála og börnin sjá um reksturinn.“
Tímamót Íslendingar erlendis Eldri borgarar Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira