Lewis Hall gjaldgengur gegn Chelsea Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. desember 2023 17:45 Lewis Hall, vinstri bakvörður Newcastle. Lewis Hall, lánsmaður í liði Newcastle frá Chelsea, má spila með Newcastle þegar liðin mætast í átta liða úrslitum Carabao bikarsins.
Leikurinn fer fram næsta þriðjudagskvöld og flestir töldu að Lewis Hall myndi ekki spila leikinn, svipað og Martin Dubravka spilaði ekki úrslitaleikinn í marki Newcastle gegn Manchester United á síðasta tímabili heldur Loris Karius. En ólíkt Manchester United hefur Chelsea gefið Newcastle leyfi til þess að nota lánsmanninn sinn. Lewis er 19 ára gamall varnarmaður og hefur nýtt tækifæri sín vel á þessu tímabili. Newcastle hefur verið að glíma við mikil meiðslavandræði og hann því komið oftar við sögu en flestir hefðu búist við. Hann hefur komið inn á sem varamaður í síðustu tveimur deildarleikjum Newcastle gegn Fulham og Tottenham. Þar áður hefur hann spilað stóra leiki í þriðju og fjórðu umferð Carabao bikarsins gegn Manchester liðunum báðum. Lewis Hall kemur upp úr akademíu Chelsea og skrifaði undir átta ára samning við félagið fyrr í sumar. Ákvörðun Chelsea gæti hins vegar bent til þess að leikmaðurinn sé ekki stór hluti af framtíðaráformum þeirra. Auk þess er leikmannahópur félagsins gríðarstór og Lewis gæti orðið hluti af niðurskurði næsta sumar. Newcastle er með forkaupsrétt tryggðan þegar lánstíma Lewis lýkur eftir tímabilið.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira