Íslenska karlalandsliðið í fótbolta varð í kvöld að horfa upp á Slóvaka fagna sæti á EM 2024, eftir 4-2 tap Íslands í Bratislava. Fjarlægur möguleiki Íslands á að komast upp úr J-riðli er því úr sögunni fyrir lokaleikinn við Portúgal ytra á sunnudag eftir.
Möguleikar Íslands á að komast á EM eru þó síður en svo úr sögunni og allar líkur á að liðið fari í fjögurra liða umspil í lok mars, vegna árangurs síns í Þjóðadeildinni. Miðað við frammistöðuna í kvöld þarf margt að breytast á þeim rúmu fjórum mánuðum sem eru fram að því umspili.
Orri veitti skammvinna sælu
Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi þó yfir í kvöld, með glæsilegu skallamarki á 17. mínútu, en eftir það tóku Slóvakar smám saman öll völd á vellinum. Þeir jöfnuðu metin upp úr hornspyrnu og komust yfir eftir umdeildan vítaspyrnudóm, og voru 2-1 yfir í hálfleik.
Upphaf seinni hálfleiks var svo martröð hjá íslenska liðinu og skoraði Lukas Haraslín tvö mörk sem svo gott sem gerðu út um leikinn.
Varamaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen náði þó að minnka muninn úr sinni fyrstu snertingu í leiknum, á 74. mínútu, en þar við sat.
Það er eitthvað sem hægt er að svekkja sig á lengi að Ísland skyldi ekki vera nær því að komast upp úr þessum „heppilega“ riðli, en tölurnar ljúga ekki og sýna að liðið var einfaldlega langt frá því. Ísland er núna níu stigum á eftir Slóvakíu og bilið gæti enn breikkað. Frammistaða liðsins á útivelli hefur hingað til ítrekað valdið miklum vonbrigðum og ekki hægt að búast við að niðurstaðan verði eitthvað betri í lokaleiknum gegn Portúgal á sunnudaginn.
Eins og í fyrri leikjum Íslands undir stjórn Åge Hareide átti Ísland mjög flottan kafla í leiknum í kvöld, og það var á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Eftir það var frammistaðan einfaldlega vonbrigði, eins og í svo mörgum leikjum í þessari undankeppni.
Glæsiskalli Orra Steins, eftir frábæra fyrirgjöf Guðlaugs Victors, virtist kveikja í heimamönnum og senda íslenska liðið nánast í skotgrafirnar. Ísland skapaði sér alla vega ekki eitt einasta færi, eða gerði sig líklegt til þess, fyrr en Andri Lucas minnkaði muninn eins og fyrr segir.
VAR-kjaftshöggið
Vissulega var íslenska liðið óheppið að missa Arnór Ingva Traustason meiddan af velli í stöðunni 1-0, í hans mikilvæga hlutverki á milli varnar og sóknar, en það á ekki að mola liðið svona niður. Slóvakar sóttu stíft og eftir nokkrar hornspyrnur í röð jöfnuðu þeir verðskuldað upp úr einni slíkri, á 30. mínútu.
Skömmu síðar kom svo VAR-kjaftshögg þar sem Craig Pawson sneri ákvörðun sinni um að dæma ekki víti, eftir að hafa séð á skjá að Kristian Nökkvi Hlynsson braut á Ondrej Duda. Kristian var að spila sinn fyrsta A-landsleik og svo sannarlega hent í djúpu laugina, en dómurinn var strangur ef ekki hreinlega rangur. Vonbrigði fyrir Kristian sem var svo tekinn af velli strax í hálfleik en hann hristir þau vonandi af sér strax.

Og Kristian verður að minnsta kosti ekki sakaður um neinn þátt í martraðarbyrjun Íslands í seinni hálfleik þar sem Lukás Haraslín skoraði tvö mörk á skömmum tíma, gegn hripleku íslensku liði.
Jákvæð innkoma varamanna
Eftir þetta kom fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson inn á, og bættist inn í miðja vörn Íslands, og við það komst betri bragur á íslenska liðið á ný, hvort sem það var vegna innkomu Arons eða góðrar stöðu heimamanna.
Andri Lucas náði aðeins að skjóta heimamönnum skelk í bringu en fyrir utan fínt skot Alfreðs Finnbogasonar utan teigs þá átti Ísland ekki fleiri tilraunir til að sækja stig úr leiknum. Niðurstaðan því þriðji útileikurinn í þessari undankeppni þar sem Ísland virtist í raun ekkert mikið síðra lið en var samt svo langt frá því að taka nokkuð með sér heim.
Horft til mars
Það er því erfitt að vera upplitsdjarfur. En ef Ísland hefur heppnina með sér, eins og í drættinum fyrir þessa undankeppni, þá gæti verið að andstæðingarnir í umspilinu í lok mars verði Ísrael í Búdapest og svo Bosnía eða Finnland í úrslitaleik (þar sem dregið yrði um heimavöll). Þannig hljómar það því eins og gerlegt verkefni að komast á EM en til þess þurfa góðir kaflar að verða að heilsteyptri og ásættanlegri frammistöðu, og kannski þarf mikið meira en fjóra mánuði til að hún verði til.