Viltu elska mig? Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Húgó skrifa 3. október 2023 11:01 Ég hef eytt löngum stundum á kaffihúsi hér í borginni þar sem ég hef átt hraðstefnumót við misskemmtileg og óáhugavert fólk. Ég sit stundum í makindum mínum úti í glugga á kvöldin og syng. En ég er ekki að syngja fyrir aðra, bara fyrir mig. Kannski er ég að kalla á vin, leita að ástinni. Frelsinu. Er ég leiðinlegur? Nei, það held ég ekki. Mér leiðist allavega ekki með sjálfum mér, svona yfirleitt. Þegar ég var yngri þá var ég algjör prakkari. Kannski vandræðaunglingur í augum sumra. Ég átti það til að bregða mér í bæinn og komst oft inn á bari þó ég hafi gleymt nafnskírteininu mínu heima. Enda hefði mér ekki verið hleypt inn sökum útlits. Þannig að ég smeygði mér inn þegar enginn sá til. Ég elskaði bassadrunurnar og hallaði mér því upp að hátalaranum, lokaði augunum og lét mig dreyma. Er ég morðingi? Nei, ég hef aldrei litið á mig þannig. Ég hef stundum lagt mér bráð til munns en það er þá eftir að hafa orðið mér út um veiðileyfi og hef ég háð baráttuna við bráðina og spilað leikinn drengilega, svona oftast. Það er ekki mér að kenna að ég sé stærri, sterkari og öllu vitrari en það sem hefur endað á disknum mínum. Svona er hringrás lífsins. Þeir sterku lifa af, hinir enda á grillinu. Er ég einmana? Nei, það efast ég um. Hef aldrei þurft á félagsskap annarra að halda. Það má kannski kenna trámatískri æsku um. Kannski faðmaði mamma mín mig aldrei. Kannski var ég ekki nógu lengi á brjósti. Kannski fékk ég ekki næga athygli sem ungviði. Þá fer það stundum svona. En ég man það bara ekki hvernig þetta var allt saman, ég var svo lítill. En kannski er ég bara svona frá náttúrunnar hendi. Mér finnst ég samt að mestu leyti æðislegur. Þar sem ég bý núna er stöðugur renningur af fólki. Upp til hópa finnst mér þetta helst til leiðinlegt fólk og hef lítið gefið mig að því. Ég hef örsjaldan orðið skotinn, kannski ástfanginn. En það voru oftast útlendingar sem gátu ekki tekið mig með sér. Voru ekki tilbúin í skuldbindinguna. Þannig að ég hef lent í ástarsorg. Þess vegna hef ég kannski átt erfitt með að opna mig, hleypa öðrum að mér. Því ég vil ekki hjartasárin sem þessu fylgir. En ég hef alveg haft gaman af þessu stundum, eins og einnar nætur gaman. En svo hafa þau farið, horfið og ekki litið um öxl. Gleymt mér kannski. Er ég ótukt? Nei, ekki þannig. Ef þér finnst ég vera leiðinlegur þá finnst mér þú líklega enn leiðinlegri. Máttu koma við mig? Helst ekki. Má ég koma við þig? Nei, ég vil það ekki. Mér finnst það ekki gott. En kannski, bara kannski, þá mun ég leyfa þér það, ef þú ákveður að þú getir kannski elskað mig. Nennir mér. Tekur mér eins og ég er. Því ég er innst inni ágætur. Er ég flökkukind? Tja, má maður aðeins? Ég hef bara alltaf haft mikla þörf á því að skoða heiminn. Vera sjálfstæður. Anda að mér ferska loftinu. Njóta þess að vera til. Er eitthvað að því? Er það ekki það sem flestir þrá? Mér hefur bara fundist gaman að kíkja í heimsókn, líta inn. Ég á ekki síma þannig að ég hef ekki alltaf getað gert boð á undan mér. Eru bara allir hættir að koma óvænt í heimsókn? Er það bara allt í einu bara alveg bannað að banka upp á? Má maður aðeins? Ég hef ekki verið neitt nema almennilegur við þetta fólk sem ég hef heimsótt. Það er ekki eins og ég hafi skriðið inn um glugga og migið í rúmið hjá fólki. Það er reyndar lygi, þetta með gluggana. Ég hef alveg skriðið inn um glugga og í sumra augum er það kannski óviðeigandi. En ég hef ekki verið með neinn dónaskap. Bara þegið eins og einn harðfiskbita eða ýsuflak hjá yndislegu fólki. Mjólkursopa kannski. Er einhver skömm að því? Ég var aðallega í því að heimsækja stúdenta á stúdentagörðunum. Það er upp til hópa skemmtilegt fólk sem er í háskóla til að drekka í sig visku og vín. Ég lenti þar oft í heimspekilegum samræðum um lífið og tilveruna og lét svo sækja mig og fara með mig aftur heim þar til ég þurfti að skreppa aftur í heimsókn. Þetta gerði ég allavega 100 sinnum og elskaði þetta unga fólk sem opnaði fyrir mér sínar íbúðir, gaf mér að éta og var frekar almennilegt. Er ég sérvitur? Einhver myndi kalla þetta duttlunga í hegðun, að ég vilji vera svona á þvælingi. Það er náttúrlega bara þvæla. Ég er bara æðislegur, eins og ég er. Er einhver skömm að því? Verð ég heppinn? Já kannski, ef þú vilt ganga að eiga mig og taka mér eins og ég er. Ef þú getur átt í platónsku sambandi við mig, sætt þig við að samskipti okkar verði að mestu byggð á hugboðum því það eru litlar líkur á því að ég nenni að horfa í augun á þér. Ég á kannski ekki eftir að bera mikla virðingu fyrir þér. Ég á kannski eftir að láta mig hverfa dögum saman eins og einhver fyllibytta en þá getur þú bara farið á Al-Anon fund og unnið á þinni eigin sál. Ég sé um mína. Ég þarf að fá að éta og ef mér hugnast þá máttu kannski klappa mér, en bara kannski. Ég veit ekki einu sinni hvort ég muni nenna að leika við þig. Ég er orðinn tíu ára þannig að okkar stormasömu sambúð myndi að öllum líkindum ljúka innan nokkurra ára þegar ég fer í Sumarlandið. En vonandi sérðu þér fært að elska mig, eins og ég er. En sambúðin verður bara stormasöm ef þú getur ekki látið mig í friði. Ég get náttúrlega ekki lofað því að ég komi aftur heim, þó svo að þú hagir þér almennilega. Því ég lifi í núinu. En best þætti mér kannski að búa í einhversskonar litlu bæjarfélagi, eða sveit þar sem eru nokkur hús þar sem ég fengi að flakka á milli húsa. Mér er sagt að ég sé ekki í húsum hæfur þar sem búist er við keleríi og kossum. Ég er ekkert fyrir það. En mér þætti mögulega leiðinlegt í sveit. Í mínum huga er lítið fútt í því, en það gæti verið misskilningur. Ég þarf bara að geta sótt partý á nokkrum stöðum þar sem ég má ekki lengur fara á djammið niðri í bæ og ég má ekki lengur heimsækja og fara á trúnó með háskólastúdentum. Meiri afskiptasemin alltaf hreint. Fólkið sem ég er hjá núna hélt að það væri eitthvað að mér. Að ég væri svona mikið fíbbl af því að mér liði eitthvað illa og væri illt einhversstaðar. En eins og ég var búin að segja þeim, það er ekkert að mér. Mér finnst þau bara leiðinleg. Innst inni þá held ég samt að ég þrái að þú elskir mig. Ég get verið önugur og afundinn en ég er herramaður fram í klær, Ég vil ekki klapp, en þarf að komast á flakk. Viltu koma og sækja mig? Og elska mig eins og ég er? Ég sendi þér fráhrindandi kveðju, Þinn, Húgó á Kattakaffihúsinu P.S. Mér skilst að það sé eitthvað fólk þarna úti sem líst vel á mig og ætlar kannski að fara með mig heim til sín. Verði þeim að því. Þannig að þú þarft kannski að fara í röð. Stórstjarnan sem ég er. En þá eru víst fleiri svona kattaróféti eins og ég sem þú gætir reynt að vingast við. Þau eru víst öllu almennilegri en ég og opnari fyrir nánari kynnum. Anna Gunndís Guðmundsdóttir Höfundur er leikkona, handritshöfundur og leikstjóri og nágranni Húgós. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Anna Gunndís Guðmundsdóttir Kettir Dýr Mest lesið Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir Skoðun Umferðarslys eða umhverfisslys Baldur Sigurðsson Skoðun Þreytta þjóðarsjálfið Starri Reynisson Skoðun Þegar Inga Sæland sendir reikninginn á næsta borð Einar Þorsteinsson Skoðun Vextir eins og í útlöndum? Björn Berg Gunnarsson Skoðun Opinber áskorun til prófessorsins Brynjar Karl Sigurðsson Skoðun Nei, veiðigjöld eru ekki að hækka! Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Síðan hvenær var bannað að hafa gaman? Hópur stjórnarmanna í Uppreisn Skoðun Veiðum hval - virðum lög Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Berjumst gegn fátækt á Íslandi! Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá friði til vígvæðingar: Höfnum nýrri varnar- og öryggisstefnu utanríkisráðherra Steinunn Þóra Árnadóttir,Einar Ólafsson skrifar Skoðun Þungaflutningar og vegakerfið okkar Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Stærsta öryggismál barna í dag eru samskipti, mörk og viðbrögð við grun um ofbeldi Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum ólöglegan flutning barna Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Inga Sæland sendir reikninginn á næsta borð Einar Þorsteinsson skrifar Skoðun Erlendar rætur: Hornsteinn framfara, ekki ógn Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Virðingarleysið meiðir Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Kjarninn og hismið Magnús Magnússon skrifar Skoðun „Hættu að kenna innflytjendum um að tala ekki íslensku. Við erum ekki vandamálið“ Ian McDonald skrifar Skoðun Brjálæðingar taka völdin Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Ég og Dagur barnsins HRÓPUM á úrlausnir … Hvað með þig? Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Guðbjörg S. Bergsdóttir,Rannveig Þórisdóttir skrifar Skoðun Ætti Sundabraut að koma við í Viðey? Ólafur William Hand skrifar Skoðun Ekki klikka! Því það er enginn eins og Julian Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Þess vegna er vond hugmynd hjá Reykjavíkurborg að tekjutengja leikskólagjöld Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun 34 milljónir fyrir póstnúmerið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Spyrnum við fótum – eflum innlenda fjölmiðla, líka RÚV Kristján Ra. Kristjánsson skrifar Skoðun Staðreyndir um fasteignagjöld í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir,Sverrir Bergmann Magnússon,Sigurrós Antonsdóttir,Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,Bjarni Páll Tryggvason,Díana Hilmarsdóttir,Helga María Finnbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar rykið sest: Verndartollar ESB og áhrifin á EES Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Stormur í vatnsglasi eða kaldhæðni örlaganna? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Síðan hvenær var bannað að hafa gaman? Hópur stjórnarmanna í Uppreisn skrifar Skoðun Ísland slítur sig frá þriggja áratuga norrænu menntasamstarfi Hópur fyrrverandi UWC-nema skrifar Skoðun Frá skjá til skaða - ráð til foreldra um stafrænt ofbeldi Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Barnaskattur Vilhjálms Árnasonar Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hertar og skýrari reglur í hælisleitendamálum Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skelin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Ójöfn atkvæði eða heimastjórn! Sigurður Hjartarson skrifar Skoðun Sirkus Daða Smart Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Bændur fá ekki orðið Jóhanna María Sigmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Frá friði til vígvæðingar: Höfnum nýrri varnar- og öryggisstefnu utanríkisráðherra Steinunn Þóra Árnadóttir,Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Stærsta öryggismál barna í dag eru samskipti, mörk og viðbrögð við grun um ofbeldi Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun „Hættu að kenna innflytjendum um að tala ekki íslensku. Við erum ekki vandamálið“ Ian McDonald skrifar
Skoðun Þess vegna er vond hugmynd hjá Reykjavíkurborg að tekjutengja leikskólagjöld Halla Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir skrifar
Skoðun Staðreyndir um fasteignagjöld í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir,Sverrir Bergmann Magnússon,Sigurrós Antonsdóttir,Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,Bjarni Páll Tryggvason,Díana Hilmarsdóttir,Helga María Finnbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Ísland slítur sig frá þriggja áratuga norrænu menntasamstarfi Hópur fyrrverandi UWC-nema skrifar