Listaparið Hera Hilmarsdóttir og Sam Keeley voru á meðal þeirra sem nutu lífsins í Vesturbæjarlaug á sunnudaginn. Þau voru bæði með vatnsbrúsa við höndina og voru í góðum gír. Parið hefur verið saman í nokkur ár. Sam er írskur leikari og Hera hefur verið áberandi í stórum verkefnum undanfarin ár, svo sem þáttaröðinni See og Svari við bréfi Helgu.
Hera og Sam búa erlendis og eru lítið fyrir að deila einkalífinu á samfélagsmiðlum og birta ekki oft myndir af hvort öðru á Instagram. Þau hafa þó verið par í mörg ár.
Flugfreyjur á árshátíð
Skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Siggi Gunnars veislustýrðu á árshátíð flugfélagsins Atlanta þar sem þau klæddu sig sem flugfreyjur.
Hættu samtímis
Ofurhlaupakonan Mari Jaersk og Margrét Salomé hættu samtímis eftir 25 hringi.

Þyrla uppljóstraði kynið
Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Birgitta Líf Björnsdóttir og kærastinn hennar, Enok Jónsson héldu kynjaveislu í gær. Parið tilkynnti kyn barnsins með ansi óvenjulegum hætti og pöntuðum þyrlu til að dreyfa bláum lit þegar flogið var framhjá húsinu. Blár litur kom niður úr þyrlinu og eiga þau von á dreng.
Birgitta birti fjölda mynda á samfélagsmiðlum úr veislunni sem var hin glæsilegasta.






Giftist uppáhalds manneskjunni
Tónlistarkonan Alma Goodman og Ed Westwick gengu í það heilaga á dögunum.
Haustfatnaður
Sunneva Einars mátaði ýmis dress í haustlitunum.
Fjölbreytileikanum flaggað
Hjónin Ingileif og María Rut hvöttu fólk til að fagna fjölbreytileikanum á samfélagsmiðlum með myndbirtingum.
„Sýnum þeim sem reyna að hræða okkur í felur að við erum hér og við erum stolt. Því ástin sigrar alltaf á endanum.“
Kaka í rúmið
Sunneva Einars og Birta Líf Ólafsdóttir fögnuðu þriggja ára afmæli hlaðvarpsins Teboðið.
Frí í Flórens
Tískudrottningin Elísabet Gunnars og eiginmaður hennar, Gunnars Steinn Jónsson njóta lífsins í sólinni í Flórens á Ítalíu ásamt yngstu dóttur þeirra.
Kynjaveislur víða um helgina
Sandra Helgadóttir fagnaði mágkonu sinni, fimleikakonunni, Kolbrúnu Þöll Orradóttur og ófæddri Ísaksdóttur í kynjaveislu þeirrar síðarnefndu um helgina.
Legkakan sló í gegn
Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld bakaði svokallaða legköku, eins og hún orðar það, fyrir vinkonur sínar í kynjaveislu um helgina.

Ást í útlöndum
Brynja Dan Gunnarsdóttir varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, og kærastinn Jóhann Sveinbjörnsson nutu sólarinnar erlendis á dögunum.
Alltaf svöng
Tónlistarkonan Sara Pétursdóttir berar óléttukúluna í sólinni.
Skvísumynd
Tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð eða GDRN, birtir skvísumynd á dögunum þar sem hún virðist hafa litað hárið á sér dekkra.
Brúðarmyndirnar komnar
Dansarinn og fasteignasalinn, Tara Sif Birgisdóttir birti myndir úr brúðkaupi hennar og eiginmannsins, Elfars Elí sem haldið var á Ítalíu í ágúst.
Átján ára brúðkaupsafmæli
Hönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir fagnað átján ára brúðkaupsafmæli um helgina á Spáni.
Fjáröflun á föstudegi
Hjónin Hrefna Bachmann og Ólafur Vilhjálmsson stóðu fyrir fjáröflunarkvöldi á sjöttu hæðinni á Hafnartorgi á föstudag til styrktar hjálparstarfi í Úganda. Þangað var saman komið fólk sem hefur undanfarinn rúman áratug hjálpað til við uppbyggingu skóla, heilsugæslu, fæðingarheimilis og stutt við bakið á þorpsbúum í bænum Banda í Úganda.

Gestir, sem voru um hundrað talsins, borguðu sig inn á kvöldið, keyptu vínflöskur, tóku þátt í happdrætti auk þess sem uppboð fór fram á listaverkum listamanna á borð við Pétur Gaut og Steinunni Jónsdóttur. Mikil gleði var við völd og fjölmargir þjóðþekktir gestir. Má þar nefna Davíð Másson fjárfesti, hjónin Hilmar Þór Kristinsson og Rannveigu Eir Einarsdóttur, leikarahjónin Nínu Dögg Filippusdóttur og Gísla Örn Garðarsson, Geir Sveinsson og Jóhönnu Vilhjálmsdóttur auk verktakans Þorvaldar Gissurarsonar sem lánaði húsnæðið fyrir veisluna. Þá voru Egill Einarsson, Anna Lilja Johansen og Arnar Sveinn Geirsson sömuleiðis í banastuði.
Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, var veislustjóri og meðal þeirra sem tróðu upp var Saga Garðars með uppistand, Högni Egilsson sem spilaði á fiðlu og gítar auk þess að syngja, Örn Kjartansson stýrði uppboðinu á listaverkunum, Selma Björns fékk fólk til að taka tryllinginn á dansgólfinu áður en Auddi, Steindi og Sveppi hlóðu í slagarana sína.