Burnley áfram án sigurs Siggeir Ævarsson skrifar 27. ágúst 2023 15:10 Matty Cash fagnar öðru af tveimur mörkum sínum í dag Vísir/Getty Jóhann Berg og félagar eru áfram án stiga í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-3 tap gegn Aston Villa í dag. Jóhann lagði upp eina mark Burnley. Gestirnir í Villa komust fljótlega í 0-2 en það var varnarmaðurinn Matty Cash sem skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum. Jóhann Berg byrjaði á bekknum en kom inn á í hálfleik. Hann var varla kominn inn á þegar hann var búinn að leggja upp mark fyrir Lyle Foster sem lagaði stöðuna í 1-2 en nær komust Burnley ekki og bíða áfram eftir fyrstu stigum tímabilsins. Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn