Byggir Ríkisendurskoðun þessa niðurstöðu á málflutningi fulltrúa Bankasýslu ríkisins á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd sem fram fór 28. júní síðastliðinn. Vegna þessa hefur embættið óskað eftir ítarlegum upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um stöðu mála er varðar tvær tilteknar ábendingar sem settar voru fram í skýrslunni og til hvaða ráðstafana ráðuneytið hafi gripið með það að markmiði að styrkja eftirfylgni með eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki og koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.
Greint er frá þessu á vef embættisins en Ríkisendurskoðun hefur hafið eftirfylgni með stjórnsýsluúttekt þess á bankasölunni. Felur sú eftirfylgni í sér að spyrjast fyrir um stöðu úrbóta hjá þeim aðilum sem ábendingum hefur verið beint til. Gert er ráð fyrir að niðurstaða hennar liggi fyrir í haust.
Ekki við Bankasýsluna að sakast
Á áðurnefndum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í lok júní sögðu stjórnarmenn Bankasýslunnar meðal annars að það væri ekki við stofnunina að sakast þótt ekki hafi verið farið að lögum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
„Það liggur fyrir sátt þar sem öllu þessu er lýst og það er ekki gerð nein athugasemd við okkar aðkomu að ferlinu. Vandamálið er að sá sem sá um þessa framkvæmd fylgdi ekki reglunum. Þær voru til staðar og nú hefur Fjármálaeftirlitið komist að því að brot hafi verið framin, þannig að kerfið virkar,“ sagði Lárus Blöndal stjórnarformaður þegar hann var spurður að því hvernig brot við framkvæmd sölunnar hefðu farið fram hjá Bankasýslunni.
Þá stóð Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, við fyrri yfirlýsingar um að útboðið hafi verið farsælasta hlutafjárútboð Íslandssögunnar, og bætti við að það væri eitt það farsælasta sem hafi átt sér stað í Evrópu.
Þær ábendingar sem Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir að ráðuneytið bregðist sérstaklega við varða annars vegar að öflugur ríkisaðili þurfi að vera til staðar til að fylgja eftir eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, og hins vegar nauðsyn þess að fyrirbyggja hagsmunaárekstra og orðsporsáhættu þegar kemur að sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki.
Seinni ábendingin kemur til í kjölfar þess að Íslandsbanki var sjálfur meðal umsjónaraðila útboðs á hlutum ríkisins í bankanum. Þá hefur ríkisstjórnin lagt til að Bankasýsla ríkisins, sem fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, verði lögð niður.
Fjölþættir annmarkar sagðir hafa verið á sölunni
Að sögn Ríkisendurskoðunar hefur fjármála- og efnahagsráðuneytinu, ásamt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis verið kynnt sú ákvörðun að til standi að fylgja eftir niðurstöðum stjórnsýsluúttektarinnar sem birt var í nóvember í fyrra.

Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að standa hefði þurft betur að undirbúningi og framkvæmd sölunnar. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að meginmarkmið hennar og viðmið um framkvæmd hafi verið á reiki.
Þá segir að tilhlýðilegar kröfur hafi ekki verið gerðar til umsjónaraðila, söluráðgjafa og söluaðila. Vegna annmarka á framkvæmdinni hafi eftirspurn verið vanmetin við ákvörðun um leiðbeinandi lokaverð í útboðinu. Eins hafi ekki verið gætt eins vel og mögulegt var að reglum um gagnsæi og hlutlægni. Útfærsla tilboðsfyrirkomulagsins hafi ekki getað tryggt fullt jafnræði þeirra fjárfesta sem því var beint að.
Einnig gerði Ríkisendurskoðun athugasemdir við upplýsingagjöf og sagði ekki hægt að fullyrða að salan hafi verið ríkissjóði eins hagkvæm og mögulegt var. Annmarkar söluferlisins voru sagðir fjölþættir og lúta bæði að undirbúningi og framkvæmd sölunnar.

Niðurstaða Fjármálaeftirlits Seðlabankans varði ekki Bankasýsluna
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur í kjölfar hennar komist að þeirri niðurstöðu að lög hafi verið brotin við framkvæmd á útboði Íslandsbanka á hlutum í bankanum og náð samkomulagi við hann um að ljúka málinu með 1,2 milljarða króna sekt.
Ríkisendurskoðun segir að sáttin varði ekki stjórnsýslu Bankasýslu ríkisins sem framkvæmdaraðila sölunnar þar sem stofnunin falli ekki undir eftirlit Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Verða því engar ályktanir dregnar af sáttinni um stjórnsýslu Bankasýslu ríkisins af hálfu Ríkisendurskoðunar.
Þær ábendingar sem Ríkisendurskoðun vill að fjármála- og efnahagsráðuneytið bregðist við sem hluta af eftirfylgni embættisins
Ábending 1: Öflugan ríkisaðila þarf til að fylgja eftir eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki
Tryggja verður að sá ríkisaðili sem lögum samkvæmt fer með sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum búi yfir nauðsynlegum mannauði til að rækja hlutverk sitt, sem og grunnþekkingu á þeirri söluaðferð sem ákveðið er að beita hverju sinni. Þá er brýnt að hann gefi þeim sem ráðnir eru til að annast söluferlið skýr fyrirmæli og leiðbeiningar um framkvæmd þess.
Ábending 5: Fyrirbyggja verður hagsmunaárekstra og orðsporsáhættu
Við sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki getur sú tilhögun að viðkomandi fyrirtæki komi með beinum hætti að sölunni (sem umsjónaraðili, söluráðgjafi eða söluaðili) verið til þess fallin að grafa undan vægi lögbundinna sjónarmiða um jafnræði og hlutlægni. Áhætta vegna hagsmunaárekstra eykst sem og orðsporsáhætta ríkisins.
Fréttin hefur verið uppfærð.