Innlent

Út­burði fjöl­skyldunnar frestað þar til í ágúst

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Jakubs Polkowski á heimili sínu í Keflavík. Til stóð að hann ásamt fjölskyldu sinni yrðu borin út á morgun en því hefur nú verið frestað um rúman mánuð.
Jakubs Polkowski á heimili sínu í Keflavík. Til stóð að hann ásamt fjölskyldu sinni yrðu borin út á morgun en því hefur nú verið frestað um rúman mánuð. Stöð 2

Útburði pólskrar fjölskyldu sem missti heimili sitt á nauðungaruppboði hefur verið frestað um rúman mánuð. Til stóð að útburðurinn færi fram í fyrramálið en frestunin er í samráði við nýjan eiganda. Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir þetta mjög jákvætt þar sem tími gefist nú til að finna mögulegar lausnir á málinu. 

„Ég var að fá þetta í hendurnar fyrir tveimur mínútum síðan en þessi póstur var sendur til okkar í gærkvöldi. Ég get það staðfest að það sé búið að fresta útburði til fyrstu vikunnar í ágúst,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar.

Mál hins 23 ára gamla Jakubs Polkowski sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á nauðungaruppboði hefur verið mikið í umræðunni síðasta sólarhringinn.

Ákvörðun tekin í samráði við nýjan eiganda hússins

Hús Jakobs, sem er öryrki og fatlaður eftir læknamistök, var selt á nauðungaruppboði fyrir aðeins brot af markaðsvirði, eða á þrjár milljónir eftir að engin gjöld eða tryggingar höfðu verið greidd og skuldir safnast upp. 

Útgerðarmaður úr Sandgerði keypti húsið á þrjár milljónir og í gær var greint frá því að hann hyggðist ekki hætta við kaupin, þrátt fyrir umræðuna. 

„Bara gleði“

Friðjón segir að ákvörðunin um frestun útburðarins hafi verið tekin í samráði við nýjan eiganda hússins, útgerðarmanninn. Þetta séu mjög jákvæðar fréttir.

„Við vorum búin að finna húsnæði en það er bara sett á hold þar til það er búið að vinna meira úr þessu máli varðandi fjölskylduna. Nú vinnst betri tími til að vinna í málinu. Nú hafa þau heilan mánuð í viðbót og kannski gerast góðir hlutir á þeim tíma.“

Friðjón segir að búið sé að tilkynna fjölskyldunni tíðindin.

Hvernig voru þeirra viðbrögð?

„Bara gleði, bara gleði.“


Tengdar fréttir

„Mér er bara svo mis­boðið“

Þingmenn og fleiri eru afar ósátt með að bera eigi ungan öryrkja í Keflavík úr einbýlishúsi sínu næstkomandi föstudag vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum er harðlega gagnrýndur fyrir sinn hlut í málinu.

Borinn út eftir að sýslumaður seldi einbýlið á þrjár milljónir

Hús ungs öryrkja í Keflavík, sem metið er á 57 milljónir króna, var selt á nauðungaruppboði sýslumanns á þrjár milljónir vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Hann er nú allslaus og bíður útburðar á föstudag. Vinnubrögð sýslumanns, sem segist aðeins vera að framfylgja lögum, eru harðlega gagnrýnd í ljósi þess að maðurinn virðist ófær um að gæta hagsmuna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×