Kínverjar sagðir borga fyrir njósnastöð á Kúbu Samúel Karl Ólason skrifar 8. júní 2023 17:31 Frá Havana á Kúbu. Getty/Frédéric Soltan Yfirvöld í Kína og á Kúbu hafa komist að samkomulagi um að Kínverjar fái að reisa njósnastöð í Karíbahafinu. Þessa stöð eru Kínverjar sagðir ætla að nota til að hlera fjarskipti, gervihnattasendingar og ýmsar annars konar sendingar frá suðausturhluta Bandaríkjanna, þar sem finna má fjölmargar herstöðvar.
Þetta hefur Wall Street Journal eftir heimildarmönnum sínum í ríkisstjórn Bandaríkjanna. CNN fékk svo seinna í dag sömu upplýsingar. Samkvæmt upplýsingum Bandaríkjamanna hafa Kínverjar boðist til að greiða yfirvöldum á Kúbu nokkra milljarða dala fyrir leyfi til að reisa umrædda njósnastöð. Þessar fregnir eru sagðar hafa vakið áhyggjur innan ríkisstjórnar Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, vildi ekkert segja um þessa tilteknu frétt WSJ, heldur sagði hann yfirvöld Bandaríkjanna meðvituð um að Kínverjar væru að fjárfesta í innviðum ríkja víða um heim og í sumum tilfellum með hernaðarlegum tilgangi. Það væri einnig að gerast í nágrenni Bandaríkjanna. CNN segir að Bandaríkjamenn hafi komist á snoðir um samkomulagið á undanförnum vikum og að óljóst sé hvort bygging njósnastöðvarinnar sé hafin. Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem Kínverjar ættu í njósnum sem þessum í Norður-Ameríku. Frægasta tilfellið er þegar njósnabelgur, sem talinn er hafa verið sett á loft af Kínverjum, sveif yfir meginlandi Bandaríkjanna í febrúar. Ráðamenn í Bandaríkjunum segjast hafa komið í veg fyrir að hægt hafi verið að nota belginn til njósna og var hann skotin niður um leið og hann sveif yfir sjó. Mikil spenna Mikill spenna er á milli Bandaríkjanna og Kína en hún hefur aukist mjög á undanförnum árum. Hana má að miklu leyti rekja til ólöglegs tilkalls Kínverja til nánast alls Suður-Kínahafs. Meðal annars má rekja þá auknu spennu til ólöglegs tilkalls Kína til nánast alls Suður-Kínahafs og til Taívans, sem ráðamenn í Kína hafa heitið að verði sameinað Kína og það með valdi ef svo þurfi. Sjá einnig: Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Bandaríkjamenn eru meðal þeirra sem hafa heitið því að koma Taívan til aðstoðar verði gerð innrás í eyríkið. Það hafa yfirvöld í Japan einnig gert. Kínverjar hafa staðið í gífurlega umfangsmikilli hernaðaruppbyggingu og nútímavæðingu á undanförnum árum. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa varað við því að hernaðargeta Kína vari að nálgast getu Bandaríkjanna. Biden sendi nýverið Bill Burns, yfirmann Leyniþjónustu Bandaríkjanna, til Peking til viðræðna við ráðamenn þar. Þá mun Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, líklega ferðast til Kína á næstu vikum. Li Shangfu, varnarmálaráðherra Kína, neitaði þó í síðustu viku að hitta Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Sá fyrrnefndi gagnrýndi Bandaríkjamenn í kjölfarið og sakaði þá um „kaldastríðs-hugsunarhátt“sem hefði gert átök líklegri. Sjá einnig: Stríð milli Kína og Bandaríkjanna „óbærilegar hörmungar“ Æðstu menn herafla Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að herstöðvar ríkisins í Kyrrahafinu séu berskjaldaðar gagnvart kínverskum eldflaugum. Unnið er að því að dreifa úr vopnum, vistaverum hermanna, stjórnstöðvum og öðrum hergögnum til að gera eldflaugaárásir erfiðari. Vonast er til þess að með þessu verði ekki hægt að lama heilu herstöðvarnar í tiltölulega fáum árásum, komi nokkurn tímann til átaka milli Kína og Bandaríkjanna.
Kína Kúba Bandaríkin Tengdar fréttir Saka kínverskan flugmann um „óþarflega ágenga“ hegðun Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna í Indlands- og Kyrrahafi sökuðu kínverskan flugmann í dag um „óþarflega ágenga“ hegðun yfir Suður-Kínahafi. Kínverskur flugmaður flaug herþotu af gerðinni J-16 í veg bandarískrar eftirlitsvélar af gerðinni RC-135. 30. maí 2023 22:35 Bandaríkjamenn virðast vilja bæta samskiptin við Kína Ráðgjafar Joe Biden Bandaríkjaforseta segja hann meðvitaðan um að bandamenn Bandaríkjamanna við Kyrrahaf hafi afar takmarkaðan áhuga á að vera dregnir inn í langvarandi átök milli Bandaríkjanna og Kína. 26. maí 2023 06:59 Kínverjar æfir út í G7 ríkin Stjórnvöld í Kína ásaka G7 ríkin um samantekin ráð um að sverta orðspor Kína á heimsvísu og ráðast gegn hagsmunum landsins. 22. maí 2023 08:13 „Stríð kemur ekki til greina“ „Stríð kemur ekki til greina.“ Þetta sagði Tsai Ing-wen, forseti Taívan í dag á sjö ára valdaafmæli hennar. Hún sór þann eið að viðhalda friði á Taívansundi en mikil spenna hefur verið á svæðinu frá því að Kínaher hóf að stunda heræfingar á svæðinu, með tilheyrandi ógn fyrir eyríkið. 20. maí 2023 17:02 Flugu tugum herþota við Taívan Minnst 38 kínverskum orrustuþotum og öðrum herflugvélum var flogið nærri Taívan í morgun. Æfingar Kínverja við eyríkið hafa ekki verið umfangsmeiri frá því í byrjun mánaðarins þegar æft var hvernig umkringja ætti Taívan. Þá var Tsai Ing-wen, forseti Taívans, að snúa heim eftir heimsókn til Bandaríkjanna. 28. apríl 2023 16:54 Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira
Saka kínverskan flugmann um „óþarflega ágenga“ hegðun Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna í Indlands- og Kyrrahafi sökuðu kínverskan flugmann í dag um „óþarflega ágenga“ hegðun yfir Suður-Kínahafi. Kínverskur flugmaður flaug herþotu af gerðinni J-16 í veg bandarískrar eftirlitsvélar af gerðinni RC-135. 30. maí 2023 22:35
Bandaríkjamenn virðast vilja bæta samskiptin við Kína Ráðgjafar Joe Biden Bandaríkjaforseta segja hann meðvitaðan um að bandamenn Bandaríkjamanna við Kyrrahaf hafi afar takmarkaðan áhuga á að vera dregnir inn í langvarandi átök milli Bandaríkjanna og Kína. 26. maí 2023 06:59
Kínverjar æfir út í G7 ríkin Stjórnvöld í Kína ásaka G7 ríkin um samantekin ráð um að sverta orðspor Kína á heimsvísu og ráðast gegn hagsmunum landsins. 22. maí 2023 08:13
„Stríð kemur ekki til greina“ „Stríð kemur ekki til greina.“ Þetta sagði Tsai Ing-wen, forseti Taívan í dag á sjö ára valdaafmæli hennar. Hún sór þann eið að viðhalda friði á Taívansundi en mikil spenna hefur verið á svæðinu frá því að Kínaher hóf að stunda heræfingar á svæðinu, með tilheyrandi ógn fyrir eyríkið. 20. maí 2023 17:02
Flugu tugum herþota við Taívan Minnst 38 kínverskum orrustuþotum og öðrum herflugvélum var flogið nærri Taívan í morgun. Æfingar Kínverja við eyríkið hafa ekki verið umfangsmeiri frá því í byrjun mánaðarins þegar æft var hvernig umkringja ætti Taívan. Þá var Tsai Ing-wen, forseti Taívans, að snúa heim eftir heimsókn til Bandaríkjanna. 28. apríl 2023 16:54