Chelsea með augastað á Neymar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. apríl 2023 08:30 Neymar virðist vera á leið frá París. Christian Liewig/Getty Images Eins ótrúlegt og það hljómar þá gæti enska knattspyrnufélagið Chelsea reynt að festa kaup á Brasilíumanninum Neymar í sumar.
Hinn 31 árs gamli Neymer er leikmaður París Saint-Germain í dag. Samningur hans í París gildir til sumarsins 2025 en vitað er að félagið vill losna við Neymar af launaskrá í von um að verða minna „bling“ og líklegra til að verða sigursælt í Evrópu. Að sama skapi virðist PSG ekki ætla að standa í vegi fyrir að Lionel Messi snúi heim til Katalóníu. Ef eitthvað er virðist PSG líklegra til að borga flug undir Argentínumanninn. Neymar hefur áður orðaður við Chelsea en það var áður en félagið keypti alla leikmenn Evrópu með púls í janúarglugganum. Það er þó vitað til að það verður tekið til í leikmannahópi Chelsea í sumar og má reikna með að fjöldi leikmanna yfirgefi félagið. Bandaríkjamaðurinn Todd Boehly, eigandi Chelsea, vill eflaust fá eitt stórt nafn inn til að sýna stuðningsfólki félagsins að Chelsea stefni aftur í fremstu röð. Sem stendur virðist það nafn vera Neymar. Brasilíumaðurinn er meiddur um þessar mundir og verður frá það sem eftir lifir tímabils. Hann átti þó nokkuð gott tímabil fram að því. Skoraði hann 13 mörk og lagði upp önnur 11 í aðeins 20 leikjum í frönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Í Meistaradeild Evrópu skoraði hann 2 mörk og lagði upp 3 til viðbótar í aðeins 6 leikjum. Chelsea er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 39 stig að loknum 31 leik.
Fótbolti Enski boltinn Franski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Sport Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira