Kennarinn hafi notfært sér ungan aldur hennar Máni Snær Þorláksson skrifar 24. febrúar 2023 10:43 Paris Hilton segir frá erfiðri lífsreynslu í viðtalinu. Getty/Emma McIntyre Raunveruleikastjarnan Paris Hilton hefur gengið í gegnum margt á sinni ævi. Í forsíðuviðtali við Glamour tímaritið opnar hún sig um hluti sem hún segist ekki einu sinni hafa sagt fjölskyldunni sinni frá áður. „
Ég er ekki heimsk ljóska, ég er bara mjög góð í að láta þannig,“ segir Hilton í viðtalinu. Hún segir að raunveruleikinn sé sá að hún er sterk, óbugandi, hugrökk, klár og skemmtileg. Hilton hefur áður verið opinská um erfiða lífsreynslu sína. Á meðal þess sem hún hefur sagt frá er ofbeldi sem hún varð fyrir í tveimur mismunandi skólum. Þá hefur hún einnig talað um það þegar kynlífsmyndbandi af henni var leikið á netið. Í viðtalinu við Glamour segist Hilton hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul, í tvö mismunandi skipti. Hefur ekki ennþá sagt fjölskyldunni frá Hilton segir að í fyrra skiptið hafi kennarinn hennar verið gerandinn. Hann hafi notfært sér ungan aldur hennar. „Þetta var eitthvað sem ég lokaði á, ég mundi ekki eftir þessu fyrr en mörgum árum síðar. Hann hringdi alltaf í mig, var bara að reyna við mig, reyndi að láta mig trúa því að ég væri þroskuð kona.“ Hún segir að eitt kvöldið hafi kennarinn fengið hana til að koma út af heimili sínu og inn í bílinn hans. Fljótlega síðar komu foreldrar Hilton keyrandi upp að húsinu. „Við kysstumst bara en ef foreldrar mínir hefðu ekki komið, geturðu ímyndað þér hvað hann hefði reynt að gera?“ Hilton prýðir forsíðu Glamour tímaritsins.Glamour Þá segir Hilton að kennarinn hafi verið stressaður þegar hann sá foreldrana nálgast. Hann hafi keyrt í burtu með Hilton á meðan foreldrar hennar eltu bílinn, grunlaus um hvað væri í gangi. „Við bókstaflega keyrðum í gegnum Bel Air á 160 kílómetra hraða,“ segir hún. „Við fórum svo hratt og einhvern veginn komumst við í burtu frá þeim því það var rautt ljós. Hann var að missa vitið og keyrði mig aftur heim.“ Kennarinn hafi þá sagt Hilton að fara úr bílnum. Hún gerði það, hljóp upp í herbergið sitt og lét sem hún væri sofandi þegar foreldrar hennar komu heim. „Ég hef ekki ennþá talað við fjölskylduna mína um þetta. Ég hef aldrei sagt neinum frá þessu.“ „Ég varð strax ringluð og mig svimaði“ Seinna skiptið átti sér stað þegar Hilton bjó hjá móðurömmu sinni. Þá fór hún um hverja helgi að hitta vinkonur sínar í verslunarmiðstöð. Þar hafi þær hitt eldri stráka, talað við þá og gefið þeim númerin sín. „Einn daginn buðu þeir okkur heim til sín og við vorum að drekka áfenga drykki,“ segir Hilton sem tekur þó fram að hún hafi ekki viljað fá sér, einn strákurinn hafi ýtt henni í að fá sér sopa. „Ég fékk mér kannski einn eða tvo sopa, ég varð strax ringluð og mig svimaði.“ Hilton gerir ráð fyrir að henni hafi verið byrlað ólyfjan. Hún segist hafa vaknað nokkrum tímum síðar, viss um að eitthvað hafi gerst. „Ég mundi eftir því. Ég sá hann fyrir mér ofan á mér, haldandi um munninn minn, segja við mig: „Þig er að dreyma, þig er að dreyma.“ Hann hvíslaði því að mér.“ Paris Hilton skaust upp á stjörnuheiminn upp úr aldamótum. Hér er hún árið 2004.Getty/Chris Weeks Heimavistarskólinn reyndist martröð Önnur átakanleg reynsla úr æskunni sem Hilton fer yfir er þegar hún var í heimavistarskóla frá sextán til átján ára aldurs. Foreldrar hennar höfðu skráð hana í skólann í góðri trú um að hann myndi hjálpa henni að verða hlýðnari. Hún hafði fyrir það verið að skrópa í skólann og stelast að heiman til að djamma. Reynsla Hilton af skólanum er þó ekki sú að hann hafi hjálpað henni með þessi vandamál. Hún segir að í raun hafi hún upplifað hryllilega hluti þar. Meðal annars hafi starfsfólkið þar neytt ofan í hana lyf. „Ég var send í einangrun því ein stelpan klagaði að ég væri ekki að taka lyfin. Starfsfólkið hélt á mér inn í herbergi, kastaði mér inn og tók fötin mín. Ég veit ekki einu sinni hversu lengi ég var þar inni, ég var í móðursýkiskasti, grátandi. Það var blóð á veggjunum, hægðir, þvag, bara niðurfall. Engir gluggar.“ Breytti sársaukanum í kraft Hilton segir að þegar hún komst úr skólanum hafi hún lofað sjálfri sér að tala aldrei um þetta. „Ég var bara lítil stelpa. Mér bara líður eins og þau hafi stolið barnæskunni minni og það brýtur í mér hjartað að þetta er ennþá að koma fyrir svo mörg börn í dag,“ segir hún. Að lokum ákvað Hilton þó að segja frá reynslunni sinni. Hún segist hafa breytt sársaukanum í kraft með því að gerast aktívisti. Í dag lætur hún til sín taka og berst fyrir því að koma lögum á stofnunum sem þessar. Hún segir það vera valdeflandi að berjast fyrir þessum málstað. „Vitandi að ég get verið hetjan sem ég þurfti alltaf þegar ég var lítil stelpa.“
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fleiri fréttir Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka Sjá meira