Viðskiptablaðið greinir frá og vísar í nýjustu lestrarkönnun Gallups, sem aðgengileg er hér.
Þar má sjá að á milli síðastliðins desembermánaðar og janúarmánaðar fór hlutdeild Fréttablaðsins í lestri úr 28,2 prósent í 15,7 prósent. Er að um að ræða rúma 44 prósent lækkun á milli mánaða.
Ákveðið var í upphafi árs að hætta að dreifa blaðinu inn á heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri.
Þess í stað var ákveðið að blaðið yrði aðgengilegt í þar til gerðum stöndum á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi og á Akureyri auk þess sem það verður gefið út í rafrænu formi eins og verið hefur.
Þegar litið er til höfuðborgarsvæðisins er breytingin meiri. Þar fer lestur Fréttablaðsins úr 34,6 prósentum í 17,2 prósent. Er þar um að ræða rétt rúmlega 50 prósent minnkun á lestri.
Morgunblaðið er því orðið mest lesni prentmiðillinn af þeim þremur sem koma út oftar en vikulega. Morgunblaðið bætir lítillega við sig lestri yfir sama tímabil, fer úr 17,8 prósent í 18,9. Sé bara litið til höfuðborgarsvæðisins fer lestur Morgunblaðsins úr 19,7 prósent í 19,9 prósent.
Í frétt Fréttablaðsins, þar sem tilkynnt var um breytingar á dreifingu blaðsins, kom fram að ekki væri búist við því að þær myndu hafa áhrif á lesturinn.
Fréttablaðið rekur einnig fréttavefinn frettabladid.is, sem hefur um nokkurt skeið verið þriðji mest lesni vefur landsins. Sjá má á vef Gallups að lestur þar hefur aukist frá því í desember. Vefurinn á samt sem áður þó nokkuð í land til að ná lestri Vísis og mbl.is, sem bítast um yfirleitt um efsta sætið á listanum.
Ekki hefur náðst í Jón Þórisson, forstjóra Torgs, við vinnslu fréttarinnar.