Aðeins sjö mánuðum eftir að yngri dóttir hennar kom í heiminn er Embla kominn á fullt með Valskonum, og því lá beinast við að spyrja hana hvernig henni liði.
„Mér líður bara vel. Gott að vera að spila aftur, mjög gaman, og gott fyrir andlegu hliðina líka. En þetta var bara geggjaður liðssigur og gaman að vera í Val.“
Embla gat þó ekki tekið undir þá fullyrðingu blaðamanns að hún væri hratt og örugglega að komast í sitt gamla form.
„Nei alls ekki, augljóslega ekki sko.“ – sagði Embla og hló við, greinilega skemmt yfir bjartsýni blaðamanns. „En það er bara eitthvað sem kemur. Ég reyni bara að spila á minni reynslu, skjóta opnum skotum, koma með einhverja baráttu og taka fráköst. Ég er alls ekki að spila eins og í mínu gamla formi en það kemur bara og það er ekkert sem ég er að stressa mig á. Þetta er aðallega fyrir andlegu hliðina, koma aftur og vera með. Vera partur af liði. Og komast útúr húsi!“
Embla kom eins og áður sagði með mikinn kraft og baráttuanda inn í leik Vals í kvöld. Hún kom með margt inn í leikinn sem sést ekki endilega á tölfræðiskýrslunni og virtist hreinlega kveikja í liðsfélögum sínum þegar leikurinn var í járnum. Hún uppskar tvær villur í röð á örstuttum kafla og var ansi ósátt við aðra þeirra. Það var því ekki úr vegi að spyrja Emblu hvort Ísak Kristinsson hefði mögulega splæst tæknivillu á þessi viðbrögð?
„Eflaust Simmi já líka.“ – sagði Embla hlæjandi. „Þetta er bara leikurinn, hiti og leikmenn þurfa að fá að pústa líka.“
En þetta er samt eitthvað sem er ómissandi partur af leiknum, stundum þarf bara einhvern til að sýna smá tilfinningar og koma hlutnum á hreyfingu?
„Algjörlega, og við erum með fullt lið og fullt af leikmönnum þar sem hver og einn er með sitt hlutverk og þetta er bara hlutverkið mitt núna. Að koma og gösslast aðeins inná. Fá nokkrar villur og kannski æsa aðeins upp í leikmönnum.“
Nú eru Valskonur komnar með 10 sigra í röð í deildinni. Er Embla ekki bara nokkuð bjartsýn á framhaldið?
„Jú en við erum bara að hugsa um einn leik í einu, ekkert endilega að hugsa um þessa tíu leiki í röð. Næsti leikur er bara næsti leikur. Sigur í kvöld og við ætlum bara að halda áfram, einn sigur í einu.“
Framundan er landsleikjapása. Tekur Embla henni fagnandi á þessum tímapunkti?
„Kærkomin hvíld fyrir mig! Fínt að fá að æfa örlítið meira, hlaupa aðeins og komast betur inn í liðskerfin. Kærkomið held ég.“