Allt tiltækt lið Reykjavíkurborgar að störfum Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 18. desember 2022 17:50 Ryðja þarf um 1200 kílómetra. Vísir/Vilhelm Allt tiltækt lið Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar er að störfum við snjómokstur. Stofn- og tengibrautir eiga að vera færar en safngötur eru margar ófærar í efri byggðum. Ekki er gert fyrir úrkomu á höfuðborgarsvæðinu næstu daga.
Vetrarþjónustan hófst strax handa á á föstudagskvöld með áherslu á stofnbrautir og strætóleiðir. Vinna hefur haldið linnulaust áfram og erfiðlega hefur gengið að moka í Grafarvogi, Grafarholti, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Vandræði sköpuðust við Víkurveg seint í gærkvöldi sem leyst var með því að kalla út aukatæki í samráði við lögregluna. Hið sama gerðist í Skyggnisbraut í Úlfarsárdal í morgun en göturnar eiga nú að vera færar. Í kortunum er hvöss norðaustanátt og gæti því skafið nokkuð, og þá sérstaklega vestast í Vesturbænum. Færð gæti spillst í kvöld og í nótt. Ráðstafanir hafa verið gerðar og Vetrarþjónustan er í viðbragðsstöðu. „Það getur tekið nokkra daga að leysa úr þessu verkefni, því ryðja þarf um 1200 kílómetra af götum og 800 kílómetra af stígum, þar af eru 500 kílómetrar í forgangi,“ segir í tilkynningunni. Þess má geta að hringvegurinn er um 1200 kílómetra langur og er verkefnið því nokkuð umfangsmikið.
Veður Reykjavík Snjómokstur Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Sjá meira