Innlent

Blindir sjá fyrir sér mun verri þjónustu

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Leigubílstjórar hringsóluðu í kringum Dómkirkjuna og utan við Alþingishúsið í mótmælaskyni þegar atkvæðagreiðsla um leigubílafrumvarpið fór fram í vikunni.
Leigubílstjórar hringsóluðu í kringum Dómkirkjuna og utan við Alþingishúsið í mótmælaskyni þegar atkvæðagreiðsla um leigubílafrumvarpið fór fram í vikunni. Aðsend

Leigubílafrumvarp sem rýmkar skilyrði til að reka leigubíl var samþykkt í gær. Leigubílstjórar hyggjast leggja niður störf á mánudag og þriðjudag vegna málsins og formaður Blindrafélagsins hefur áhyggjur af því að þjónusta við fatlaða muni versna til muna. 

Frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra var samþykkt í gær. Allir viðstaddir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja greiddu atkvæði með frumvarpinu en þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins greiddu atkvæði á móti frumvarpinu.

Sjá einnig: Frumvarpið sem leigubílstjórar óttast orðið að lögum

Með frumvarpinu eru ýmis skilyrði leigubifreiðaaksturs afnumin. Félagsmenn bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra munu leggja niður störf á mánudag og þriðjudag vegna málsins. Sigþór Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins lýsir einnig áhyggjum yfir því að þjónustan muni versna til muna í kjölfar breytinganna og vísar til samtala við kollega sína í Skandinavíu eftir að álíka breytingar voru gerðar á leigubílakerfi þar.

„Þar bæði versnaði þjónustan og öryggið fyrir því að þjónustan væri tilhlýðlega góð. Við höfum heyrt sögur af fólki sem var skilið eftir á miðri götu eftir að bílstjóri nennti ekki að leita að staðnum sem hann átti að keyra á,“ segir Sigþór og bætir við að í umræðunni um leigubíla hafi verið einblínt á að bíla vanti um helgar. Blindrafélagið sé hins vegar að horfa til að bílar séu til staðar allan sólarhringinn og alla virka daga. Hann segir afnám á stöðvarskyldu geta orðið til þess að þjónustan versni til muna

„Eins og kerfið hefur verið þá er sá bílstjóri sem verður uppvís að einhvers konar misferli umsvifalaust tekinn úr þeirri þjónustu og það gerist í gegnum stöðina. Manni hefur fundist umræðan öll snúast um föstudags- og laugardagskvöld en enginn er að horfa til þess að leigubílar eiga að vera til staðar allan sólarhringinn daga ársins. Okkar hópur reiðir sig á leigubíla til að komast til og frá vinnu en við höfum áhyggjur af framboðinu,“ segir Sigþór að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×