Innlent

Borgarstjóri hefur áhyggjur af kulnun í íbúðaframkvæmdum

Heimir Már Pétursson skrifar
´Mikil þétting byggðar hefur átt sér stað í Reykjavík á undanförnum árum. Nú er til að mynda verið að byggja íbúðarhúsnæði þar sem BYKO var áður við Hringbraut.
´Mikil þétting byggðar hefur átt sér stað í Reykjavík á undanförnum árum. Nú er til að mynda verið að byggja íbúðarhúsnæði þar sem BYKO var áður við Hringbraut. Reykjavíkurborg

Borgarstjóri segir að ekki muni standa á Reykjavíkurborg að hafa nægar lóðir í boði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í borginni. Hann óttast hins vegar að flöskuháls geti myndast vegna tregðu lánastofnana og getu byggingaraðila til að halda í við eftirspurnina.

Árlegur fundur Reykjavíkurborgar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni fór fram í Ráðhúsinu í morgun. Fundurinn hófst á því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fór yfir stöðuna í dag og áform um uppbyggingu víðs vegar um borgina, allt frá þéttingarreitum til nýrra hverfa.

Klippa: Upp­bygging í­búða í Reykja­vík - Erindi Dags B. Eggerts­sonar

„Síðustu fimm ár hafa verið metár en stóru fréttirnar eru þær að næstu tíu verða ennþá stærri. Þannig að Reykjavík er í rauninni að leggja fram plön um gríðarmikla uppbyggingu um alla borg. Sem er líka í takti við góðar samgöngur og á réttum stöðum þannig að þetta gangi allt upp hvað með öðru,“ segir Dagur.

Langatímameðaltal í uppbyggingu íbúða í Reykjavík hafi verið sex hundruð nýjar íbúðir á ári. Nú væri stefnt á að meðaltalið verði sextán hundruð.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri óttast að verið sé að vinna að kulnun á íbúðamarkaðnum þannig að enn ein sveiflan endurtaki sig.Vísir/Vilhelm

„En næstu fimm viljum við sjá tvö þúsund íbúðir rísa. Erum í raun að sýna fram á að í skipulagi og lóðaúthlutunum gætu þær orðið allt að þrjú þúsund,“ segir borgarstjóri.

Dagur hefur hins vegar áhyggjur af nýlegum vaxtahækkunum og stöðu húsnæðismarkaðarins almennt gagnvart viðskiptabönkunum.

„Það sem að mun ráða hraðanum er ekki Reykjavík. Það mun ekki standa á okkur heldur framkvæmdafjármögnun frá lánastofnunum. Þar höfum við ákveðnar áhyggjur af því að það sé verið að framkalla mikla kulnun á þessum uppbyggingarmarkaði sem við höfum öll þörf fyrir að sé í góðu jafnvægi,“ sagði Dagur B. Eggertsson.


Tengdar fréttir

Íbúðaframboð í örum vexti

Lengri meðalsölutími, samdráttur í undirrituðum kaupsamningum, aukið framboð, húsnæðisverðslækkanir erlendis og sú staðreynd að tæplega þriðjungur útistandandi íbúðalána er á breytilegum óvertryggðum vöxtum bendir allt til að framundan séu húsnæðisverðslækkanir.

Í­búða­fram­boð eykst hratt

Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt undanfarið. Á höfuðborgarsvæðinu hefur framboð aukist um 45 prósent á einum mánuði.

Heimilin ættu að búa sig undir aukna verðbólgu og hærri vexti

Heimilin í landinu ættu að búa sig undir að meginvextir Seðlabankans hækki í allt að sex prósent fyrir árslok að mati Greiningar Íslandsbanka. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af innfluttri verðbólgu en húsnæðismarkaðurinn komist vonandi í jafnvægi á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×