Viðskipti innlent

Verð­bólga hækkar lítil­lega og mælist 9,4 prósent

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tólf mánaða verðbólga hækkar lítillega á milli mánaða.
Tólf mánaða verðbólga hækkar lítillega á milli mánaða. Vísir/Vilhelm

Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,4 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði.

Þetta kemur fram í uppfærslu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sem birt var í morgun.

Þar segir að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2022, sé 559,3 stig og hækki um 0,67% frá fyrri mánuði.

Verð á matvælum hækkaði um 1,6 prósent, sen hafði áhrif á vísitöluna um 0,22 prósent. Á vef Hagstofunnar segir að þar muni mest um lambakjöt sem hækkaði um 16,2 prósent.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hækkaði um 0,8 prósent.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,4%, það sem í daglegu tali er nefnt verðbólga.

Mest fór verðbólgan upp í 9,9 prósent í júlí en hefur farið lækkandi frá þeim hápunkti. Greiningardeildir bankanna spá því að verðbólga muni fara minnkandi í hægum takti næstu misserin.


Tengdar fréttir

Spá kröftugum hag­vexti en að kaup­máttur dragist aftur úr

Hagfræðideild Landsbankans spáir 6,5 prósenta hagvexti á þessu ári, þeim mesta frá 2007, en að svo hægi töluvert á hagkerfinu. Bankinn spáir því að stýrivextir byrji að lækka á seinni hluta ársins 2023 en að verðbólga fari ekki undir fjögur prósent fyrr en árið 2025.

Spá því að verð­bólga haldi á­­fram að minnka

Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,3 prósent hækkun á vísitölu neysluverðs í októbermánuði. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan minnka úr 9,3 prósentum í 9,0 prósent. Það yrði þá þriðji mánuðurinn í röð sem verðbólga minnkar og telur deildin að verðbólga hafi náð hámarki.

Ásgeir: Mögulega toppi náð í vaxtahækkunum

„Mögulega erum við komin á toppinn í þessu vaxtahækkunarferli.“ Þetta sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi í morgun þegar stýrivaxtaákvörðun var kynnt. „Mögulega, ef allt gengur eftir, erum við búin að gera nóg.“

Bein­skeytt skila­boð seðla­banka­stjóra: „Ætla aðrir að taka við boltanum?“

Ásgeir Jónsson, var nokkuð beinskeyttur, þegar hann varpaði boltanum í baráttunni gegn verðbólgunni til aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Hann sagði Seðlabankann hafa náð árangri gegn verðbólgunni og spurði í leiðinni hvað aðrir lykilleikendur í efnahagslífinu ætli sér að gera til að ná verðbólgunni niður.

Verðbólgan komin niður í 9,3 prósent

Verðbólga síðustu tólf mánaða heldur áfram að minnka og mældist 9,3 prósent í september. Verð á fötum og skóm og raftækjum til heimilisnota kom helst til hækkunar en verð á flugfargjöldum til lækkunar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×