Stuðningsmenn bauluðu á Schmeichel Sindri Sverrisson skrifar 24. október 2022 17:45 Kasper Schmeichel hefur leikið tíu deildarleiki fyrir Nice en gæti verið á förum strax í janúar. Getty Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá franska félaginu Nice og gæti verið á förum frá félaginu í janúar eftir að hafa komið í sumar.
Schmeichel varði mark Leicester um árabil með glæsibrag og er í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins eftir að hafa verið einn af lykilmönnunum þegar liðið varð afar óvænt Englandsmeistari árið 2016. Hjá Nice er Schmeichel ekki í sömu metum og um helgina bauluðu stuðningsmenn félagsins á Schmeichel þegar nafn hans var lesið upp í hátalarakerfinu, fyrir 1-1 jafnteflið við Nantes á heimavelli. Stuðningsmennirnir fögnuðu hins vegar þegar nafn varamarkvarðarins, Marcin Bulka, var lesið upp. Nýverið bárust af því fregnir að Schmeichel vildi mögulega losna frá Nice í janúar og að ekki væri útilokað að hann myndi snúa aftur til Leicester, þar sem hann spilaði í rúman áratug. Í síðasta mánuði sagði franski miðillinn RMC Sport að Schmeichel væri umdeildur hjá Nice vegna þess að hann vildi ekki fara eftir öllum reglum félagsins og að aðilar honum tengdir hefðu haft beint samband við eigandann Jim Ratcliffe til að ýta á eftir því að Schmeichel yrði í byrjunarliði í fyrsta leik. Á endanum var þó hinn pólski Bulka valinn í þann leik. Þá þótti Schmeichel hafa mætt með of háa fituprósentu úr sumarfríinu. Schmeichel hefur nú varið mark Nice í tíu deildarleikjum en liðið er í 12. sæti af 20 liðum í frönsku 1. deildinni.
Fótbolti Franski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Sjá meira