Leikkonan og fyrirsætan María Birta er búsett í Las Vegas með eiginmanni sínum, listamanninum Ella Egilssyni, og barni þeirra hjóna. Fyrir rúmu ári festu þau kaup á húsi í Las Vegas þar sem María Birta segir þau nú vera að skjóta rótum.
Sálufélagar eftir tíu daga kynni
María Birta og Elli felldu fyrst hugi saman í október árið 2013 en níu mánuðum síðar voru þau gengin í hnapphelduna.
„Við höfðum vitað af hvoru öðru í langan tíma en boltinn byrjaði að rúlla eftir að ég varð áhugasöm um að kaupa af honum málverk. Ég lagði inn sérpöntun á verki í lok september 2013 og hann var orðinn kærastinn minn tæpum mánuði síðar. Það tók okkur um það bil tíu daga að átta okkur á því að við vorum sálufélagar.“
Þó svo að María sé dul í svörum varðandi framtíðarverkefni er þó í nægu að snúast og starfar hún í dag sem leikkona í sýningunni Atomic Saloon í Las Vegas.
Engin verður óbarin nunna
Þar fer hún með hlutverk nunnu sem fær heldur betur að kenna á því en María hefur greint frá því í viðtölum að hafa nokkrum sinnum endað á sjúkrahúsi eftir sýningar.
Í tilefni tíu ára afmælis íslensku kvikmyndarinnar Svartur á leik var nýverið tilkynnt að tvær tengdar myndir séu í býgerð og úr verði þríleikur. María Birta fór með eitt aðalhlutverka í myndinni.
„Ég er mjög spennt fyrir þessu framhaldi! Óskar Thor er algjör snillingur og þetta verða án efa geggjaðar myndir.“
Fær kaffi í rúmið hvern einasta morgun
María Birta kallar ekki allt ömmu sína og er óhrædd við að ráðast í krefjandi verkefni og elta draumana sína. Þegar kemur að rómantíkinni segist hún vissulega eiga sér rómantíska hlið en Elli, eiginmaður hennar, hafi þar vinninginn.
„Elli er mjög rómantískur. Hann hefur fært mér kaffi í rúmið hvern einasta dag frá því að við kynntumst. Hann er mikill dekrari.“
Farið þið hjónin reglulega á stefnumót?
Við gerðum meira af því áður en við urðum foreldrar. Núna skipta litlu mómentin meira máli og við finnum okkur tíma inni á milli.
Þegar María er spurð nánar út í nýjan fjölskyldumeðlim segist hún ekki vilja tjá sig nánar um það að sinni.

Hér fyrir neðan svarar María Birta spurningum úr viðtalsliðnum Ást er:
Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: Notting Hill og You’ve Got Mail!
Fyrsti kossinn: Fyrsti kossinn okkar Ella var á stigagangi í Bólstaðarhlíð klukkan 7:30 að morgni til. Ég hafði flogið heim frá LA til að koma honum á óvart og hitta hann í fyrsta skipti. Við höfðum verið að spjalla saman á netinu í um það bil tuttugu daga og ég bara hreinlega gat ekki beðið með það að hitta hann.
Uppáhalds brake-up power ballaðan mín er: Veit nú ekki hvort að það hægt sé að kalla þetta lag power ballöðu en ég fíla lagið Crazy með Patsy Cline, hlustaði mikið á þetta lag í síðasta „break-uppi“.
Lagið „okkar“ er: Hold on, We’re Going Home með Drake.
Mér finnst rómantískt stefnumót vera: Elli hefur nokkrum sinnum komið mér á óvart og breytt allri stofunni okkar í til dæmis japanskan veitingastað með tilheyrandi skreytingum eða Mexican fiesta. Mér finnst það mega rómó.
Uppáhaldsmaturinn minn: Eiginlega bara allur vegan matur en Nobu er til dæmis með fáránlega góð vegan möguleika inni á milli.
Fyrsta gjöfin sem ég gaf manninum mínum: 50 vindlar, Billicart Salmon Rose kampavínsflaska og baðbomba.
Fyrsta gjöfin sem maðurinn minn gaf mér: Málverk, að sjálfsögðu.
Ég elska að: Fara í langa göngutúra með fjölskyldunni og heimsækja lönd og borgir sem ég hef ekki komið til áður.
Maðurinn minn er: Besti pabbinn í öllum heiminum!
Rómantískasti staður á landinu er: Fyrir okkur er það litla hjartalautin í Grímsnesinu þar sem við giftum okkur.
Ást er: Traust og ristaðar furuhnetur.
