Tilkynntu tölvuleikjaspilara til lögreglu Bjarki Sigurðsson skrifar 7. október 2022 06:24 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nóg að gera í gær og í gærnótt. Vísir/Vilhelm Í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um öskur og læti frá íbúð í Kópavogi. Lögregla mætti á vettvang en í ljós kom að öskrin komu frá manni sem var að spila tölvuleiki. Hann lofaði lögreglu að róa sig niður.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir helstu verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt frá klukkan 17 til klukkan 5. Nokkuð var um ölvun í miðbænum í gær, einum ofurölvi einstakling var ekið heim af lögreglu, tilkynnt var um slagsmál á skemmtistað og einn var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur. Lögreglu barst tilkynning um einstakling sem hafði dottið af rafmagnshlaupahjóli í miðbænum. Hann var með áverka á andliti og var fluttur á slysadeild. Lögreglu grunar að maðurinn hafi verið ölvaður og því var hann sendur í blóðsýnatöku. Tilkynnt var um unglinga að fikta með eld á skólalóð í Vesturbænum. Lögreglan skoðaði málið en í ljós kom að skátarnir báru ábyrgð á eldinum. Þeir voru búnir að slökkva eldinn og með allt á hreinu þegar lögregla kom á staðinn. Ölvaður maður sofnaði undir stýri í Kópavogi. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð í sýnatöku. Þá var hann vistaður í fangageymslu lögreglu í þágu rannsóknar málsins. Í Grafarholti ók ökumaður á ljósastaur. Hann reyndist vera ölvaður og neitaði að blása í áfengismæli. Hann var því handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Rafhlaupahjól Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira