Ofskynjunarsveppir engin töfralausn en mikilvæg viðbót Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 3. október 2022 11:11 Vilhjálmur segist vita af mörgum á Íslandi sem hafi prófað sveppi og þeir hjálpað þeim mjög. Stöð 2/Arnar 22 þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri grænum hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að heimila rannsóknir og tilraunir hér á landi með hugvíkkandi efni sem finnst í sveppum. Flutningsmaður frumvarpsins segir marga nota ofskynjunarsveppi í lækningaskyni og því sé mikilvægt að skapa lagalega umgjörð utan um notkunina.
Sílósíbín heitir efnið sem finna má í um 250 mismunandi sveppategundum. Það veldur hugbreytandi áhrifum á fólki og því hafa þessir sveppir um aldaraðir verið notaðir í ofskynjunarskyni og verið bannaðir hér á landi. Undanfarin ár hefur þó orðið bylting í rannsóknum á efninu sem virðist geta dregið mjög úr alvarlegum einkennum þunglyndis og annarra geðkvilla ef það er notað á réttan hátt. Margir tína ofskynjunarsveppi á Íslandi en þeir vaxa víða um höfuðborgarsvæðið, til dæmis á umferðareyjum og túnum.getty/albert fertl „Ég fann það að hér á landi voru margir farnir að nota þetta og alltaf fleiri og fleiri og fundu að það var að gera mikið gagn og það er búið að setja mikla áherslu á þetta líka úti í heimi hjá erlendum háskólum og heilbrigðisstofnunum,“ segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er flutningsmaður tillögunnar. Með henni yrði heilbrigðisráðherra falið að heimila rannsóknir og tilraunir á efninu í geðlækningaskyni og smíða lagalega umgjörð í kring um notkun þess í framhaldinu. „Og það er líka kannski út af því sem að liggur á, því að maður verður var við að fólk sé farið að nota þetta og þyggja þjónustu frá aðilum sem að eru ekki með þessa faglegu þekkingu sem er nauðsynleg. Af því að mesta hættan við þetta efni er ef að það er ekki veitt á faglegan hátt,“ segir Vilhjálmur. Þingmenn úr öllum flokkum nema VG koma að tillögunni sem Vilhjálmur er bjartsýnn á að verði samþykkt líkt og gert var með tillögu um hamp og rannsóknir á kannabisefni. „Þetta er bara stór viðbót við þær geðlækningar sem við höfum í dag. Miðað við þær vísbendingar sem við höfum núna þá mun þetta breyta mjög miklu fyrir stóran hóp en mun ekki vera töfralausnin,“ segir Vilhjálmur.
Sveppir Geðheilbrigði Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Heilbrigðismál Hugvíkkandi efni Tengdar fréttir Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56 Tæpur fjórðungur á þunglyndis-og eða róandi lyfjum, kostnaður tvöfaldast Tæplega fjórðungur fullorðinna Íslendinga fékk þunglyndis- og eða kvíðalyf á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall en í nágrannalöndum okkar. Konur eru tvöfalt líklegri en karlar til að fá slík lyf og eldri borgarar eru hlutfallslega fjölmennasti aldurshópurinn. 7. júní 2021 19:01 Skyggnast inn í heim hugvíkkandi efna Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi. 28. apríl 2022 15:47 Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjá meira
Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56
Tæpur fjórðungur á þunglyndis-og eða róandi lyfjum, kostnaður tvöfaldast Tæplega fjórðungur fullorðinna Íslendinga fékk þunglyndis- og eða kvíðalyf á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall en í nágrannalöndum okkar. Konur eru tvöfalt líklegri en karlar til að fá slík lyf og eldri borgarar eru hlutfallslega fjölmennasti aldurshópurinn. 7. júní 2021 19:01
Skyggnast inn í heim hugvíkkandi efna Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi. 28. apríl 2022 15:47