Hjónin María Rut og Ingileif, stofnendur Hinseginleikans, fögnuðu fjölbreytileikanum og ástinni með fjölskyldunni.
Tónlistarmaðurinn, glimmer kóngurinn og gleðigjafinn Páll Óskar skein skart í gleðigöngunni um helgina og söng: „Út með hatrið inn með ástina“.
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir fagnaði afmæli sínu á Grikklandi og átti að eigin sögn besta afmælisdaginn.
Inga Lind og Arnhildur Anna tóku þátt í golfmóti FM957 og voru köflóttar og brosmildar í stíl.
Stórstjarnan Bríet birti myndaseríu af sér klæddri gallaefni frá toppi til táar.
Söngkonan og leikkonan Guðrún Ýr Eyfjörð nýtur móðurhlutverksins.
Rísandi stjarnan Gugusar sá glitta í gosið.
Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga naut lífsins í Eyjahafinu.
Listamaðurinn og uppistandarinn Hugleikur Dagsson heilsaði upp á „feður“ sína.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnaði Pride ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni og óskaði öllum til hamingju með daginn.
Herra Hnetusmjör heldur sér á floti í sólinni á Spáni.
Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars þakkar fyrir helgina en hann skvísaði sig upp fyrir gönguna og dreifði gleði eins og honum einum er lagið.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens fer sex sinnum í viku í ræktina.
Áhrifavaldurinn og LXS pían Ástrós Traustadóttir heilsaði sólskininu.
Skóhönnuðurinn Andrea Röfn býður eftir barni í Boston í faðmi fjölskyldunnar.
Hlaðvarparinn og doktorsneminn Beggi Ólafs fagnaði 30 ára afmæli sínu um helgina og hélt á sama tíma kveðjupartý þar sem hann er að flytja til Los Angeles.
Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Rakel María er öflug hlaupakona og rokkaði tvenns konar partýgalla um helgina.
Bubbi Morthens og dóttir hans Aþena Lind voru peppuð fyrir Pride.
Emmsjé Gauti og Jovana Schally gengu í það heilaga um helgina. Söngkonan Karin, litla systir Gauta, birti myndaseríu af þessum fallega degi.
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar tróð upp á tónlistarhátíðinni Ein með öllu.
Flugfreyjan og leikkonan Kristín Pétursdóttir birti myndaseríu frá Chicago þar sem hún virðist hafa skemmt sér vel með vinkonu sinni.
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime leið eins og hafmeyju í Hvammsvík á dögunum. Patrekur skein einnig skært á palli á Pride um helgina ásamt vinum sínum úr Æði.
Ari Eldjárn tróð upp í Edinborg með uppistandi sínu Saga Class.
Systurnar Sigga, Beta og Elín Ey fögnuðu Pride með fjölskyldum sínum um helgina og stóðu fyrir jafnrétti og fjölbreytileika, eins og alltaf.
Kærusturnar Íris Tanja og Elín Ey birtu fallega paramynd.
Fyrrum fótboltakappinn og núverandi athafnamaðurinn Rúrik Gíslason gekk að gosinu og var agndofa yfir stórfengleika þess.
Katrín Edda byrjar tónlistaruppeldið snemma en hún rakst á Christinu Aguilera í Brighton.
Fótboltakonan Sara Björk er komin á fullt hjá nýja liðinu sínu Juventus.
Fjölmiðlakonan og uppskriftadrottningin Eva Laufey Kjaran upplifði í fyrsta sinn á ævi sinni að borða ekta ítalskan mat og segir það hafa staðist allar sínar væntingar.
Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson opnaði sig á dögunum á samfélagsmiðli sínum um að hafa orðið fyrir byrlun á Þjóðhátíð sem fór blessunarlega ekki á versta veg sökum aðstoðar frá fagfólki á staðnum. Hann birti mynd um helgina þar sem hann segist vera góður.
Snapchat stjörnurnar, hlaðvarpararnir og grínistarnir Tinnabk og Gói Sportrönd eignuðust litla stúlku á dögunum.