Stjarnan semur við Adama Darboe Atli Arason skrifar 16. júlí 2022 07:02 Adama Darboe í leik með KR-ingum á síðasta leiktímabili. Hulda Margrét „Það verða ekki bara danskir dagar í Hagkaup næsta vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar sem hefur öflugan liðsstyrk fyrir næsta tímabil frá KR-ingum í Dananum Adama Darboe. Stjarnan verður þriðja íslenska liðið sem Darboe leikur með en hann spilaði með Grindavík árið 2008 áður en hann kom aftur til Íslands til að leika með KR á síðasta tímabili. Á síðustu leiktíð var Darboe bæði stiga- og stoðsendingahæstur hjá KR með 16,9 stig og 6,7 stoðsendingar að meðaltali á leik. Daninn var jafnframt með flest framlagsstig KR-inga eða 18,9 framlagstig á hvern leik. Er brottför Darboe því mikil blóðtaka fyrir Vesturbæinga en á sama tíma happafengur fyrir Garðbæinga. „Það er tilhlökkunarefni að sjá Adama í Stjörnubúningnum og eflaust eiga hann og Rob Turner hinn þriðji eftir að valda vörnum andstæðinganna miklum höfuðverk í vetur,“ segir enn fremur í tilkynningu Stjörnunnar í gær. >
Stjarnan verður þriðja íslenska liðið sem Darboe leikur með en hann spilaði með Grindavík árið 2008 áður en hann kom aftur til Íslands til að leika með KR á síðasta tímabili. Á síðustu leiktíð var Darboe bæði stiga- og stoðsendingahæstur hjá KR með 16,9 stig og 6,7 stoðsendingar að meðaltali á leik. Daninn var jafnframt með flest framlagsstig KR-inga eða 18,9 framlagstig á hvern leik. Er brottför Darboe því mikil blóðtaka fyrir Vesturbæinga en á sama tíma happafengur fyrir Garðbæinga. „Það er tilhlökkunarefni að sjá Adama í Stjörnubúningnum og eflaust eiga hann og Rob Turner hinn þriðji eftir að valda vörnum andstæðinganna miklum höfuðverk í vetur,“ segir enn fremur í tilkynningu Stjörnunnar í gær. >
Subway-deild karla Stjarnan KR Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira