Elsa fæddist í Reykjavík þann 25. september árið 1956 og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá þann 10. janúar árið 2019. Í stjórn Elsusjóðs sitja Björgólfur Thorsteinsson, Lilja Guðmundsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir. Varamenn eru Þórunn Sveinbjarnardóttir og Eygló Harðardóttir.
„Hugsun Elsu á bak við sjóðinn er að ástundun náms getur reynst snúnara fyrir einstaklinga með endó þar sem námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma,“
segir Lilja Guðmundsdóttir.
„Bæði verkjaköst, aðgerðir og glasameðferðir geta haft áhrif á námsframvindu sem og síþreyta sem er algengur fylgifiskur sjúkdómsins. Elsa hafði sjálf kynnst áhrifum endómetríósu á sitt nám og stofnaði sjóðinn af afar fallegri hugsjón.
Gjöf hennar og stofnun sjóðsins er ómetanleg og mun koma til með að hjálpa mörgum konum í háskólanámi. Tilvist sjóðsins er líka mikilvæg fyrir konur með endó, hann verður táknmynd viðurkenningar á því að endómetríósa hefur áhrif á nám.“
Ellefu sterkar umsóknir
Alls bárust ellefu umsóknir í ár og samkvæmt þeim sem sáu um úthlutunina reyndist það vera vandasamt verk að velja úr umsóknunum sem bárust. Þeir þættir sem horft var til voru félagslegar aðstæður, framvinda í námi og áhrif endómetríósu á námið. Þær sem fengu styrkinn í ár eru Oddný Jónsdóttir og Edda Henný Símonardóttir.
Sjóðurinn vonast til þess að hægt verði að veita fleiri styrki í framtíðinni eftir því sem sjóðurinn mun koma til með að vaxa og dafna þar sem ljóst var að þörfin er mikil.
„Við í Samtökum um endómetríósu erum þakklát Elsu og fjölskyldu hennar fyrir að láta draum hennar verða að veruleika í þágu kvenna með endó,“ segir Lilja.
