Arion banki fyrstur til að hækka vexti Bjarki Sigurðsson skrifar 28. júní 2022 22:24 Arion banki er fyrstur íslenskra banka til að hækka vexti eftir að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti í síðustu viku. Vísir/Vilhelm Á morgun munu inn- og útlánavextir hjá Arion banka hækka í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Breytingarnar ná til óverðtryggða íbúðalána, kjörvaxta, bílalána og innlána. Íslandsbanki hefur einnig boðað hækkanir þann 1. júlí næstkomandi.
Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti fyrir tæpri viku síðan um eitt prósent. Þeir eru nú orðnir 4,75 prósent sem er það hæsta síðan árið 2017. Í mars árið 2021 voru þeir 0,75 prósent og hafa því hækkað um fjögur prósent á rúmu ári. Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hjá Arion banka munu hækka um eitt prósent frá og með morgundeginum og verða 6,59 prósent. Óverðtryggðir fastir þriggja ára íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósent og verða 7,75 prósent. Almennir ótryggðir kjörvextir hækka um eitt prósentustig og verða 7,6 prósent og hækka yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga einnig um eitt prósent. Sömu söguna má segja um kjörvexti bílalána sem nú eru átta prósent. Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að eitt prósentustig og vextir veltureikninga um 0,1 prósent. Íslandsbanki hækkar einnig vexti Íslandsbanki mun hækka vexti sína um mánaðarmótin og tekur hækkunin gildi 1. júlí. Þar hækka breytilegir vextir húsnæðislána um eitt prósentustig en fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til þriggja ára um 0,3 prósentustig. Breytilegir vextir til verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,85 prósent og fastir vextir verðtryggðra lána til fimm ára um 0,4 prósent. Yfirdráttarvextir einstaklinga hækka um eitt prósent. Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um eitt prósent, breytilegir verðtryggðir kjörvextir um 0,6 prósent og breytilegir óverðtryggðir kjörvextir bílalána, Ergo og bílasamninga um eitt prósent.
Seðlabankinn Íslenskir bankar Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Sjá meira