Hiti að fimmtán stigum og hlýjast suðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2022 07:13 Víða verður norðan kaldi eða strekkingur síðdegis og dregur úr vætu. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir vestan átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag, skúrum á sunnanverðu landinu. Það snýst svo í norðlæga átt norðantil með rigningu.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu sex til fimmtán stigum og hlýjast á Suðausturlandi. Víða verður norðan kaldi eða strekkingur síðdegis og dregur úr vætu. „Norðaustan og norðan 10-15 m/s vestantil á landinu á morgun, en yfirleitt hægari vindur í öðrum landshlutum. Skýjað með köflum og víða skúrir, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti 5 til 12 stig. Annað kvöld má svo búast við rigningu eða súld norðanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s, en hægari vindur um landið austanvert. Skýjað á landinu og víða skúrir, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti 5 til 11 stig. Á föstudag: Norðan 5-13 með dálítilli rigningu á norðurhelmingi landsins. Skýjað með köflum á sunnanverðu landinu og stöku skúrir syðst. Hiti frá 4 stigum fyrir norðan, upp í 12 stig á Suðurlandi. Á laugardag og sunnudag: Norðlæg átt 3-8, en 8-13 með austurströndinni. Skýjað með köflum og stöku skúrir á Norður- og Austurlandi, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg átt með dálítilli vætu austanlands, en þurrt á vesturhelmingi landsins. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Innlent Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Innlent Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Innlent Aldrei jafn margar drónaárásir Erlent Fleiri fréttir Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Rigning eða súld um mest allt land Búist við austlægri átt Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum Lægð nálgast úr suðvestri Stormur og talsvert vatnsveður á vestanverðu landinu Styttir upp með kvöldinu og frystir um mest allt land Rigning sunnantil og víða snjókoma norðanlands Tvískipt veður á landinu Skúrir um allt land Lægð yfir Vesturlandi stjórnar veðrinu Rigning og súld í dag Vaxandi norðaustanátt og gular viðvaranir taka gildi Dálítil rigning sunnan- og vestanlands Skýjað og sums staðar rigning eða slydda Allt að átta stiga frost Hálka á vegum á suðvesturhorninu Sjá meira