Hið fornfræga lið Chicago hefur átt góðu gengi að fagna í vetur en hafði hins vegar tapað fimm leikjum í röð þegar liðið mætti Detroit á útivelli í nótt.
Chicago vann 114-108 sigur og þar hjálpaði til hálfgerð sirkuskarfa frá Javonte Green í hraðaupphlaupi, en eftir að tveir varnarmenn höfðu náð að slá í boltann fór hann einhvern veginn af fingurgómum Greens ofan í körfuna líkt og hann sogaðist þangað:
HOW? pic.twitter.com/EvzJP9XnFh
— SportsCenter (@SportsCenter) March 10, 2022
Chicago er þar með með 40 sigra en 26 töp í 4. sæti austurdeildarinnar og heldur áfram baráttu sinni um heimavallarrétt þegar úrslitakeppnin hefst.
Phoenix ekki í vandræðum með hitt toppliðið
Phoenix Suns varð hins vegar langfyrsta liðið til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina með 111-90 sigri á Miami Heat, þar sem Devin Booker skoraði 23 stig, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.
Miami er á toppi austurdeildarinnar en keppnin um deildarmeistaratitilinn þar er mun jafnari en í vestrinu þar sem Phoenix hefur haft yfirburði.
Giannis Antetokounmpo skoraði 43 stig og tók 12 fráköst í 124-115 sigri Milwaukee Bucks á Atlanta Hawks. Meistarar Milwaukee hafa þar með unnið sex leiki í röð og Antetokounmpo skoraði 82 stig á einum sólarhring því hann var með 39 stig í sigri á Oklahoma City Thunder í fyrrinótt.
Giannis has scored 82 points in his last 2 games.
— Milwaukee Bucks (@Bucks) March 10, 2022
Last night: 39 PTS | 7 REB | 7 AST 68% FGM
Tonight: 43 PTS | 12 REB | 5 AST | 68% FGM
M-V-P pic.twitter.com/gIXOu1ko6t
Jayson Tatum hélt sömuleiðis uppteknum hætti og skoraði 44 stig fyrir Boston Celtics í 115-101 sigri á Charlotte Hornets. Boston hefur þar með unnið fjóra leiki í röð og 15 af síðustu 17 leikjum sínum en liðið er í 5. sæti austurdeildarinnar.
Lakers töpuðu í framlengingu
Mesta spennan í gær var hins vegar í Texas þar sem Houston Rockets mörðu sigur á Los Angeles Lakers, 139-130, eftir framlengdan leik.
Rockets went on a 13-0 run vs. the Lakers in OT pic.twitter.com/dP40cDuq5c
— Bleacher Report (@BleacherReport) March 10, 2022
Houston er á botni vesturdeildarinnar en öll lið virðast geta unnið LeBron James og félaga þessa dagana. Nýliðinn Jalen Green átti sinn besta dag í vetur og skoraði 32 stig, þar af tíu í framlengingunni. James var með þrefalda tvennu og Russell Westbrook skoraði 30 stig en engu að síður fagnaði Houston sínum öðrum sigri í síðustu 15 leikjum.
Úrslitin í nótt:
- Charlotte 101-115 Boston
- Detroit 108-114 Chicago
- Miami 90-111 Phoenix
- Milwaukee 124-115 Atlanta
- Houston 139-130 LA Lakers
- Minnesota 132-102 Oklahoma
- New Orleans 102-108 Orlando
- Dallas 77-107 New York
- San Antonio 104-119 Toronto
- Utah 123-85 Portland
- Sacramento 100-106 Denver
- LA Clippers 115-109 Washington
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.