Íslandsmeistararnir felldu nafna sína Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2022 21:06 Þór Þorlákshöfn vann góðan sigur í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Íslandsmeistarar Þórs frá Þorlákshöfn unnu góðan sjö stiga sigur, 95-88, er liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Tap Akureyringa þýðir að liðið er fallið úr efstu deild.
Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og eftir fyrsta leikhluta var allt jafnt, 24-24. Gestirnir frá Þorlákshöfn náðu þó yfirhöndinni í öðrum leikhluta og fóru með ellefu stiga forskot inn í hálfleikinn, staðan 55-44. Heimamenn mættu grimmari til leiks í síðari hálfleik. Þeir söxuðu hægt og bítandi á forskot Íslandsmeistaranna og náðu að jafna í 70-70 þegar fjórar sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta. Það voru þó gestirnir frá Þorlákshöfn sem reyndust sterkari í lokaleikhlutanum og þeir unnu að lokum góðan sjö stiga sigur, 95-88. Luciano Massarelli var stigahæsti maður vallarins með 27 stig fyrir Þór frá Þorlákshöfn. Í liði heimamanna var August Emil Haas atkvæðamestur með 21 stig og 13 fráköst. Þór Þorlákshöfn lyfti sér í það minnsta tímabundið á topp Subway-deildarinnar með sigrinum, en liðið er nú með 28 stig eftir 18 leiki. Þór Akureyri situr hins vegar sem fastast á botni deildarinnar með aðeins tvö stig og á ekki lengur möguleika á að halda sæti sínu í Subway-deildinni.
Íslenski körfuboltinn Þór Akureyri Þór Þorlákshöfn Subway-deild karla Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira