Viðskipti innlent

Búast við jafn­vægi á í­búða­markaði á næsta ári

Árni Sæberg skrifar
Húsnæðismarkaðurinn reynist mörgum erfiður.
Húsnæðismarkaðurinn reynist mörgum erfiður. vísir/vilhelm

Greiningardeild Íslandsbanka segir íbúðamarkað enn vera á blússandi siglingu og mikla eftirspurnarspennu ríkja á markaði. Þó er hún þeirrar skoðunar að jafnvægi náist á íbúðamarkaði á næsta ári með dvínandi eftirspurn og auknu framboði nýrra íbúða.

Í pistli á vef Íslandsbanka segir að mikill uppgangur hafi verið á íbúðamarkaði frá því skömmu áður en heimsfaraldur Covid-19 skall á hér á landi. Á síðasta ári hafi íbúðaverð hækkað um sextán prósent eða ríflega 10 prósent að raunvirði.

„Mikil eftirspurn er enn til staðar á markaðnum og á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hefur íbúðaverð hækkað um þrjú prósent að nafnvirði samkvæmt gögnum Hagstofu,“ segir í pistlinum.

Vaxtalækkanir hafi áhrif á eftirspurn en ekki vaxtahækkanir

Skýring aukinnar eftirspurnar í upphafi faraldurs hafi verið lækkun stýrivaxta sem hafi orðið til þess að kjör á íbúðalánum urðu hagstæðari en nokkru sinni fyrr.

Seðlabanki Íslands hefur reynt að stíga á bremsuna undanfarið með vaxtalækkunum, nú síðast þann 9. febrúar um 0,75 prósentustig. Stýrivextir eru nú 2,75 prósent.

„Hingað til hefur hækkun vaxta ekki haft áhrif á eftirspurnina sem er enn með mesta móti,“ segir í pistli greiningardeildar.

Þó hafi dregið nokkuð úr veltu og fjölda kaupsamninga á undanförnum mánuðum en það sé líklega vegna þess að framboð er af skornum skammti fremur en vegna þess að eftirspurnarhlið markaðarins sé að róast.

Framboð haldi ekki í við eftirspurn

„Nokkuð ljóst er að framboð íbúða heldur ekki í við eftirspurnina og þessa dagana er mjög lítið af íbúðum til sölu,“ segir greiningardeildin og bendir á að aðeins séu um 450 eignir á sölu á höfuðborgarsvæðinu og 1.050 á landinu öllu.

Þó sé ekki hægt að fullyrða að ekki sé verið að byggja íbúðir. „Metfjöldi nýrra íbúða kom inn á markaðinn árið 2020 eða um 3.800 íbúðir samkvæmt gögnum Hagstofu. Á síðasta ári fækkaði þeim heldur og voru um 3.200 talsins sem er þó töluvert yfir meðaltali síðastliðinna ára.“

Greiningardeild telur að eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði muni dvína og framboð nýrra íbúða aukast þegar fram í sækir. Því sé hún þeirrar skoðunar að jafnvægi náist á íbúðamarkaði á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×