Björn sendi inn grein á Vísi í gær sem bar fyrirsögnina „Andskotans áhrifavaldar og drónaskapur!“ Í greininni segir hann að áhrifavaldar hafi átt góðan þátt í að markaðssetja Ísland og telur réttast að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að taka upp sams konar endurgreiðslu og tíðkast vegna framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis.
Hugmyndin er þessi: „Að áhrifavaldar sem hafa tiltekið fylgi og viðbrögð á sínum miðli fái að lágmarki 25 prósent endurgreiðslu á öllum kostnaði við ferðalag sitt til landsins.“ Með umbuninni sé hægt að stórefla umfjöllun og markaðssetningu á landinu.
Markaðssetning áhrifavalda mikilvæg
Björn útskýrði málið nánar í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis fyrr í dag. Þar kveðst hann telja að áhrifavaldar, eða svokallað sögufólk (e. content creators) sem jafnan útbýr myndbönd og dreifir á samfélagsmiðlum, hafi átt stóran þátt í að koma Íslandi á kortið og þá sérstaklega síðustu tíu ár.
„Ég vil eiginlega taka burt þennan núans: að þetta fólk þurfi endalaust að vera að senda póst á Íslandsstofu eða fylla eitthvað inbox hjá Icelandair eða Play eða öðrum bílaleigum og fleira; að biðja um afslætti, að biðja um styrk eða eitthvað, því það er svo erfitt að tracka þetta. Við eigum frekar að vera fyrsta landið í heiminum sem segir bara: Þið eruð bara velkomin. Við viljum vinna með þessu fólki. Þetta fólk hefur vægi,“ segir Björn.
Hann bendir á að áætlað sé að gosið í Geldingadölum hafi skilað rúmlega 50 milljörðum í fjölmiðlaumfjöllun og segir ljóst að áhrifavaldar, og þeir sem eru vinsælir á samfélagsmiðlum, spari ríkissjóði gríðarlega mikið í markaðssetningarkostnað.
„Ég tók þetta upp við hana Lilju Alfreðsdóttur vinkonu mína um daginn og henni leist bara mjög vel á þetta. Hún getur náttúrulega ekki einhent sér í að gera þetta en samtalið er komið af stað. Og það er fólk inni í ferðaþjónustunni og stór fyrirtæki sem vilja taka þetta samtal.“
Gott væri ef aðilar í ferðaþjónustunni gætu átt samtalið við áhrifavalda: „Það er 25-30 prósent endurgreiðsla á öllum kostnaði ef þú kemur. Hérna eru reglurnar, endilega komdu og reynum að vinna saman.“
Hér er aðeins stiklað á stóru en hlusta má á viðtalið við Björn hér að neðan.