Björgvin Páll veltir borgarstjórastólnum fyrir sér Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. febrúar 2022 10:20 Björgvin Páll er einn af silfurdrengjum Íslands frá því í Peking 2008. Vísir/Hulda Margrét Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska karlalandsliðsins í handbolta, veltir fyrir sér hvort hann vilji verða borgarstjóraefni Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann spyr sjálfan sig og aðra: Er ég efni í næsta borgarstjóra í Reykjavík? Björgvin greinir frá því á Facebook að kvöldið sem hann lenti á Íslandi eftir Evrópumótið í handbolta hafi hann fengið símtal frá þjóðþekktum einstaklingi sem hann beri mikla virðingu fyrir. Ekki kemur fram um hvern ræðir en ekki náðist í Björgvin við vinnslu fréttarinnar. „Samtalið hófst á því að greina EM á methraða og ræða aðeins um veiruna skæðu en það var ekki eini tilgangur símtalsins. Hann var nefnilega líka að skora á mig að bjóða mig fram sem borgarstjóraefni í Reykjavík. Þessi maður þekkir vel til minnar ástríðu fyrir málefnum barna og vildi sjá mig taka slaginn enda þyrfti að taka borgina og snúa við málum þar. Það skrýtna er að þessi hugmynd hljómaði einhverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virkilega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér,“ segir Björgvin. Vill bæta skólakerfið Hausinn hafi farið á fullt og hann hugsað af hverju viðkomandi héldi að hann gæti orðið góður borgarstjóri. „Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skólakerfin okkar og hlúa betur að foreldrum. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þessari hugmynd upp. Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn tilgangur í lífinu er að vera góð fyrirmynd og auka vellíðan en síðustu vikur og mánuði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif.“ Hans mesti drifkraftur liggi í að auka vellíðan og snúa við slæmri þróun þegar komi að börnunum. „Með hvaða hætti get ég gert sem mest gagn? Með því að halda áfram að fara inn í skólana og segja mína sögu? Með því að berjast fyrir mínum hugmyndum er kemur að hvernig má bæta skólakerfið okkar í heild sinni?“ spyr Björgvin. Hann sé ekki bara handboltakall. Beit kennarann og dúxaði í bakaranum „Ég er líka 6 ára strákurinn sem beit kennarinn minn, 8 ára strákurinn sem var tekin með hníf í skólanum og lagðir inná BUGL, 12 ára strákurinn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strákurinn sem heyrði kennarann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strákurinn sem skólakerfið brást, strákurinn sem fékk aldrei greininguna mína og lyfin mín, ég er strákurinn sem ólst upp við erfiðar aðstæður, strákurinn sem íþróttirnar björguðu, ég er iðnstúdentinn og bakarinn sem dúxaði, ég er stúdentinn sem náði sér í viðskiptafræðimenntun og stofnaði fyrirtæki, ég er einkaþjálfarinn og íþróttaþjálfarinn sem varð heltekinn af líkamlegri og andlegri heilsu, ég er atvinnumaðurinn í handknattleik sem lék erlendis í 11 ár í þremur löndum, ég er landsliðsmaðurinn sem hefur tekið þátt í ótrúlegu ferðalagi landsliðs síðustu 19 ár, ég er pabbinn og eiginmaðurinn sem hef verið greindur með ADHD, kvíðarösku, heilaáverka, vefjagigt og fylgigigt, ég fyrirmyndin sem hef síðustu ár unnið með börnum bæði innan skólakerfisins og utan þess.“ Björgvin segist þó ekki vita hvort hann sé efni í næsta borgarstjóra í Reykjavík. „Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitthvað sem hljómar allavega vel.“ Framsókn fékk 1870 atkvæði í Reykjavík í kosningunum 2018, var níundi stærsti flokkurinn í þeim kosningum og fékk engan mann kjörinn. Aðalsteinn Sverrisson, formaður Framsóknarfélagsins í Reykjavík, segir í samtali við Vísi að hann hafi ekki heyrt af þessu fyrr en hann las færslu Björgvins. Aðalsteinn Sverrisson er spenntur að fá Björgvin til liðs við flokkinn í borginni.Framsókn „Þetta er mjög flott. Björgvin Páll er mjög frambærilegur,“ segir Aðalsteinn. Hann segir Björgvin hafa verið í flottu hlutverki í kosningabaráttunni í Alþingiskosningunum í haust og stutt vel við bakið á flokknum. „Þetta gæti verið mjög blessunarlegt.“ Framboðsfrestur hjá Framsókn í borginni er til 7. febrúar. Valið er í höndu uppstillingarnefndar sem mun kynna lista á aukakjördæmaþingi þann 10. mars. „Við stefnum náttúrulega á að ná góðum árangri í borginni, það er klárt mál.“ Færsla Björgvins í heild Kvöldið sem ég lennti á Íslandi eftir EM fékk ég símtal frá þjóðþekktum einstaklingi sem ég ber mikla virðingu fyrir. Samtalið hófst á því að greina EM á methraða og ræða aðeins um veiruna skæðu en það var ekki eini tilgangur símtalsins. Hann var nefnilega líka að skora á mig að bjóða mig fram sem borgarstjóraefni í Reykjavík. Þessi maður þekkir vel til minnar ástríðu fyrir málefnum barna og vildi sjá mig taka slaginn enda þyrfti að taka borgina og snúa við málum þar. Það skrýtna er að þessi hugmynd hljómaði einhverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virkilega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér. Hausinn fór eðlilega á fullt og ég hugsaði afhverju viðkomandi héldi að ég gæti orðið góður borgarsjtjóri. Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skólakerfin okkar og hlúa betur að foreldrum. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þessari hugmynd upp. Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn tilgangur í lífinu er að vera góð fyrirmynd og auka vellíðan en síðustu vikur og mánuði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif. Minn mesti drifkraftur liggur í að auka vellíðan og snúa við þessari slæmu þróun þegar kemur að börnunum okkar, þeirra vanlíðan allri og ég hefði óskað þess að þakið hefði verið lagað áður en það var byrjað að rigna. En það er samt ekki of seint... eins og Frederick Douglass orðaði það “It is easier to build strong children than to repair broken adults.” Með hvaða hætti get ég gert sem mest gagn? Með því að halda áfram að fara inn í skólana og segja mína sögu? Með því að berjast fyrir mínum hugmyndum er kemur að hvernig má bæta skólakerfið okkar í heild sinni? Ég er ekki bara handboltakall, ég er líka 6 ára strákurinn sem beit kennarinn minn, 8 ára strákurinn sem var tekin með hníf í skólanum og lagðir inná BUGL, 12 ára strákurinn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strákurinn sem heyrði kennarann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strákurinn sem skólakerfið brást, strákurinn sem fékk aldrei greininguna mína og lyfin mín, ég er strákurinn sem ólst upp við erfiðar aðstæður, strákurinn sem íþróttirnar björguðu, ég er iðnstúdentinn og bakarinn sem dúxaði, ég er stúdentinn sem náði sér í viðskiptafræðimenntun og stofnaði fyrirtæki, ég er einkaþjálfarinn og íþróttaþjálfarinn sem varð heltekinn af líkamlegri og andlegri heilsu, ég er atvinnumaðurinn í handknattleik sem lék erlendis í 11 ár í þremur löndum, ég er landsliðsmaðurinn sem hefur tekið þátt í ótrúlegu ferðalagi landsliðs síðustu 19 ár, ég er pabbinn og eiginmaðurinn sem hef verið greindur með ADHD, kvíðarösku, heilaáverka, vefjagigt og fylgigigt, ég fyrirmyndin sem hef síðustu ár unnið með börnum bæði innan skólakerfisins og utan þess. En er ég efni í næsta borgarstjóra í Reykjavík? Ég hreinlega veit það ekki... Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitthvað sem hljómar allavega vel. Sveitarstjórnarkosningar 2022 Handbolti Reykjavík Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Erlent Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Innlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent Fleiri fréttir „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Sjá meira
Færsla Björgvins í heild Kvöldið sem ég lennti á Íslandi eftir EM fékk ég símtal frá þjóðþekktum einstaklingi sem ég ber mikla virðingu fyrir. Samtalið hófst á því að greina EM á methraða og ræða aðeins um veiruna skæðu en það var ekki eini tilgangur símtalsins. Hann var nefnilega líka að skora á mig að bjóða mig fram sem borgarstjóraefni í Reykjavík. Þessi maður þekkir vel til minnar ástríðu fyrir málefnum barna og vildi sjá mig taka slaginn enda þyrfti að taka borgina og snúa við málum þar. Það skrýtna er að þessi hugmynd hljómaði einhverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virkilega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér. Hausinn fór eðlilega á fullt og ég hugsaði afhverju viðkomandi héldi að ég gæti orðið góður borgarsjtjóri. Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skólakerfin okkar og hlúa betur að foreldrum. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þessari hugmynd upp. Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn tilgangur í lífinu er að vera góð fyrirmynd og auka vellíðan en síðustu vikur og mánuði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif. Minn mesti drifkraftur liggur í að auka vellíðan og snúa við þessari slæmu þróun þegar kemur að börnunum okkar, þeirra vanlíðan allri og ég hefði óskað þess að þakið hefði verið lagað áður en það var byrjað að rigna. En það er samt ekki of seint... eins og Frederick Douglass orðaði það “It is easier to build strong children than to repair broken adults.” Með hvaða hætti get ég gert sem mest gagn? Með því að halda áfram að fara inn í skólana og segja mína sögu? Með því að berjast fyrir mínum hugmyndum er kemur að hvernig má bæta skólakerfið okkar í heild sinni? Ég er ekki bara handboltakall, ég er líka 6 ára strákurinn sem beit kennarinn minn, 8 ára strákurinn sem var tekin með hníf í skólanum og lagðir inná BUGL, 12 ára strákurinn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strákurinn sem heyrði kennarann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strákurinn sem skólakerfið brást, strákurinn sem fékk aldrei greininguna mína og lyfin mín, ég er strákurinn sem ólst upp við erfiðar aðstæður, strákurinn sem íþróttirnar björguðu, ég er iðnstúdentinn og bakarinn sem dúxaði, ég er stúdentinn sem náði sér í viðskiptafræðimenntun og stofnaði fyrirtæki, ég er einkaþjálfarinn og íþróttaþjálfarinn sem varð heltekinn af líkamlegri og andlegri heilsu, ég er atvinnumaðurinn í handknattleik sem lék erlendis í 11 ár í þremur löndum, ég er landsliðsmaðurinn sem hefur tekið þátt í ótrúlegu ferðalagi landsliðs síðustu 19 ár, ég er pabbinn og eiginmaðurinn sem hef verið greindur með ADHD, kvíðarösku, heilaáverka, vefjagigt og fylgigigt, ég fyrirmyndin sem hef síðustu ár unnið með börnum bæði innan skólakerfisins og utan þess. En er ég efni í næsta borgarstjóra í Reykjavík? Ég hreinlega veit það ekki... Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitthvað sem hljómar allavega vel.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Handbolti Reykjavík Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Erlent Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Innlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent Fleiri fréttir „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Sjá meira