Klay Thompson skoraði 17 stig á 20 mínútum í 96-82 sigri Golden State Warriors á Cleveland Cavaliers en Golden State hafði tapað tveimur síðustu leikjum sínum.
KLAY THOMPSON JUST DROPPED THE HAMMER
— NBA (@NBA) January 10, 2022
Watch Free on NBA TV pic.twitter.com/ksffv6abBV
Klay hefur slitið krossband og hásin á síðustu tveimur árum og það var liðinn 31 mánuður frá hans síðasta leik sem var í lokaúrslitum um NBA-titilinn þar sem krossbandið fór.
Klay hitti úr 7 af 18 skotum sínum í leiknum þar af af 3 af 8 fyrir utan þriggja stiga línuna. Hápunkturinn var án efa þegar hann tróð yfir tvo leikmenn Cleveland liðsins.
Klay walks off in #PhantomCam after his Chase Center debut
— NBA (@NBA) January 10, 2022
What a night. pic.twitter.com/UC6BHWcfb2
Stephen Curry var stigahæstur hjá Golden State með 29 stig stig auk fimm frákasta og fimm stoðsendingar. Jordan Poole skoraði 14 stig en Warriors jafnaði árangur Phoenix Suns sem besta lið deildarinnar en bæði eru nú með 30 sigra og 9 töp.
@KlayThompson is back!
— NBA (@NBA) January 10, 2022
17 PTS | 3 3PM | @warriors W | #KlayDay pic.twitter.com/nK77bPqJtU
That stroke. #KlayDay #PhantomCam pic.twitter.com/tXOUCbJsLV
— NBA (@NBA) January 10, 2022
LeBron James átti enn einn stórleikinn með Los Angeles Lakers en það dugði þó ekki í fimmta sigurleikinn í röð. Lakers tapaði 119-127 á móti Memphis Grizzlies þrátt fyrir 35 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar.
Þetta var áttundi sigurleikur Memphis Grizzlies í röð. Einn af þeim sigrum var sigur liðsins á Lakers 30. desember sem þýðir að tveir síðustu tapleikur LeBron og félaga í Lakers hafa verið á móti Memphis.
LeBron tied and passed Oscar Robertson on the all-time assists list with these two dimes! #NBA75 pic.twitter.com/D79wsWDOZe
— NBA (@NBA) January 10, 2022
Desmond Bane skoraði 23 stig fyrir Memphis, Jaren Jackson Jr. var með 21 stig og 12 fráköst og Ja Morant skoraði 16 stig.
Enginn annar í byrjunarliði Lakers skoraði meira en sjö stig en Russell Westbrook var með 6 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Wayne Ellington og Austin Reaves voru næststigahæstir með 16 stig hvor.
Luka Doncic (22 PTS, 14 REB, 14 AST) is doing it ALL for the @dallasmavs while logging his 3rd triple-double of the season! pic.twitter.com/v8RMApsxK6
— NBA (@NBA) January 10, 2022
Luka Doncic var með þrefalda tvennu, 22 sitg, 14 fráköst og 14 stoðsendingar, þegar Dallas Mavericks vann 113-99 sigur á Chicago Bulls og endaði þar með níu leikja sigurgöngu Bulls liðsins. Dallas hefur nú unnið sex leiki í röð.
DeMar DeRozan og Zach LaVine skoruðu báðir 20 stig fyrir Chicago Bulls liðið en þetta var fyrsti tapleikur liðsins síðan liðið tapaði á móti Miami Heat 12. desember síðastliðinn.
CAM THOMAS WINS IT IN OVERTIME FOR THE @BrooklynNets! pic.twitter.com/SdaJiY8bz1
— NBA (@NBA) January 9, 2022
Nýliðinn Cam Thomas tryggði Brooklyn Nets 121-119 sigur á San Antonio Spurs í framlengdum leik en þetta var fyrsti sigur Brooklyn á heimavelli síðan 16. desember. Bestu menn liðsins voru þó Kevin Durant (28 stig, 6 stoðsendingar) og James Harden (26 stig, 12 stoðsendingar, 7 fráköst).
@kylekuzma WENT OFF for a HUGE double-double in the @WashWizards win!
— NBA (@NBA) January 10, 2022
27 PTS | 22 REB pic.twitter.com/JiuBrKKBiH
- Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
- Golden State Warriors - Cleveland Cavaliers 96-82
- Los Angeles Lakers - Memphis Grizzlies 119-127
- Brooklyn Nets - San Antonio Spurs 121-119 (framlengt)
- Los Angeles Clippers - Atlanta Hawks 106-93
- Toronto Raptors - New Orleans Pelicans 105-101
- Orlando Magic - Washington Wizards 100-102
- Houston Rockets - Minnesota Timberwolves 123-141
- Oklahoma City Thunder - Denver Nuggets 95-99
- Dallas Mavericks - Chicago Bulls 113-99
- Portland Trail Blazers - Sacramento Kings 103-88