Innlent

Skortur á því sem skiptir venjulegt fólk raunverulegu máli

Samúel Karl Ólason og Heimir Már Pétursson skrifa
Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir fagnaðarefni að ekki sé farið í „blóðugan niðurskurð“ í nýju fjárlagafrumvarpi. Hún segist hafa óttast það enda sé það iðulega gert á krepputímum þessum. Að öðru leyti sé „lítið að frétta“ úr fjárlögunum.

„Það er ekki þessi stórsókn í húsnæðismálum sem við höfum kallað eftir, sem skiptir venjulegt fólk raunverulegu máli og talar mjög vel inn í kjarasamninganna. Við söknum þess,“ sagði Drífa í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Hún sagði ekkert umfram almenna íbúðakerfið í frumvarpinu og það sama sé upp á teningnum þegar komi að húsaleigubótum.

Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði fjárlagafrumvarpið til marks að Íslendingum væri að vegna betur. Atvinnulífið væri að leggja grunn að sterkari stöðu ríkissjóðs.

„Það breytir þó ekki því að það eru stórar áskoranir fram undan. Þrátt fyrir batnandi afkomu þá erum við að sjá gríðarlegan hallarekstur á ríkissjóði og við þurfum að finna leiðir til að brúa þennan hallarekstur,“ sagði Ásdís.

Hún sagði SA hafa heyrt af því að stjórnvöld ætli að vaxa út úr vandanum en forsenda þess sé öflugt atvinnulíf. Því þyrfti að leggja áherslu á að bæta rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og skapa skilyrði til að lækka mögulega skatta.

Aðspurðar hvort fylkingar þeirra beggja yrðu við kalli fjármálaráðherra um hóflegar kjaraviðræður, sagði Drífa að ASÍ legði í fyrsta lagi alltaf fram ábyrgar kröfur í kjarasamningaviðræðum.

„En það fer mjög vel eftir því hvernig tilfærslukerfin verða, húsnæðismálin sérstaklega, heilbrigðismálin og öll þessi mál sem snerta raunverulegt líf fólks,“ sagði Drífa.

Ásdís sagði að SA myndi „að sjálfsögðu verða við kallinu“.

„Við finnum það öll á eigin skinni hve gríðarleg kjarabót er fólgin í því að búa við lága vexti,“ sagði Ásdís. Hún sagði að þess vegna skipti ábyrg hagstjórn öllu máli. Þar skiptu aðilar vinnumarkaðarins miklu máli.


Tengdar fréttir

Allir leggist á eitt í baráttu við verðbólgu

Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör.

Telur hljóð og mynd ekki fara saman

Þingmaður Miðflokksins segir að á meðan uppbygging sé boðuð í samgöngumálum sé dregið úr fjárfestingu í málaflokknum. 

Hundrað milljónir aukalega í skatteftirlit

Áætlað er að hundrað milljónir króna verði sett aukalega til þess að efla skattrannsóknir og skatteftirlit samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×