Veður

Skúrir vestan­til og stöku él við norðan­ströndina

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Langanesi á Akranesi.
Frá Langanesi á Akranesi. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir vestanátt í dag og skúrir á vestanverðu landinu. Síðdegis snýst vindur í norðlæga átt við norðurströndina með stöku éljum þar.

Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, en nærri frostmarki norðaustan- og austanlands.

Á vef Veðurstofunnar segir að yfirleitt verði veður á morgun mjög svipað eins og í dag, en annað kvöld snúist vindur í austanátt suðvestantil með rigningu eða slyddu þar.

„Laugardagur verður úrkomusamur um allt land með hvassri austanátt, en á sunnudag er útlit fyrir hægari vind og úrkomuminna veður, jafnvel þurrt að mestu vestantil. Hiti yfirleitt í bilinu milli 0 til 4 stig við suðurströndina, en annars um frostmark.

Eftir helgi halda umhleypingarnar áfram.“

Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt og slydduél eða él, en úrkomulítið austantil á landinu. Hiti 0 til 5 stig og vægt frost um landið norðaustanvert. Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu og hlýnandi veðri syðst um kvöldið.

Á laugardag: Austan og norðaustanátt 10-18 m/s. Rigning eða slydda sunnantil, en víða snjókoma um landið norðanvert. Hiti nærri frostmarki. Norðlægari og kólnar meira um kvöldið, og styttir upp syðra.

Á sunnudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálítil slydda um norðaustanvert landið en þurrt og bjart sunnanlands. Hiti kringum frostmark.

Á mánudag: Hvöss suðaustanátt með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum og hlýnandi veðri.

Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt með vætu sunnantil, en norðanátt með snjókomu fyrir norðan.

Á miðvikudag: Útlit fyir norðlæga átt með éljum um norðanvert landið, en bjart og þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×