Innlent

Lýsir yfir þungum á­hyggjum af stöðu vísinda­starfs á Land­spítala

Atli Ísleifsson skrifar
Landspítalinn vermir nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna þegar kemur að tilvitnunum og er kominn langt undir heimsmeðaltal í tilvitnunum.
Landspítalinn vermir nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna þegar kemur að tilvitnunum og er kominn langt undir heimsmeðaltal í tilvitnunum. Vísir/Vilhelm

Stjórn Læknaráðs Landspítalans hefur lýst yfir þungum áhyggjum af bágri stöðu vísindastarfs á spítalanum, en hann vermir nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna þegar kemur að tilvitnunum og er kominn langt undir heimsmeðaltal.

Þetta kemur fram í ályktun Læknaráðs, en þar er tekið fram að í árdaga sameinaðs Landspítala, á árunum 1999 til 2002, hafi Landspítali verið með hæsta tilvitnanastuðul fimm norrænna háskólasjúkrahúsa og langt fyrir ofan heimsmeðaltal skv. skýrslu NordForsk.

„Síðan þá hefur hallað verulega undan fæti og vermir Landspítali nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna og er kominn langt undir heimsmeðaltal í tilvitnunum. Því má segja að um algjört hrun sé að ræða og er það gert að sérstöku umtalsefni í skýrslu NordForsk frá 2017.“

Arbær fjárfesting

Læknaráð Landspítala segir það þekkt að öflugt vísinda-og nýsköpunarstarf á sviði heilbrigðisvísinda sé ein arðbærasta fjárfesting sem völ sé á. Auk þess laði slík ráðstöfun fjármuna á háskólasjúkrahúsi að hæft starfsfólk og auki gæði þjónustunnar.

„Efling vísinda-og nýsköpunarstarfs hefur því sjaldan verið brýnni en nú, þegar alvarlegur og vaxandi mönnunarvandi blasir við innan margra sérgreina Landspítala. Víðast hvar í hinum vestræna heimi nemur kostnaður við vísinda- og nýsköpunarhlutverk háskólasjúkrahúsa 3-12% af rekstrarkostnaði. Á Landspítala er þetta hlutfall áætlað innan við 1%.

Læknaráð Landspítala skorar á framkvæmdastjórn spítalans og á stjórnvöld að hefja þegar aðgerðir til að endurreisa vísindastarf innan spítalans. Auka þarf fjárframlög til vísindastarfs á háskólasjúkrahúsinu í takt við það sem gerist í löndunum í kringum okkur og eyrnamerkja þau sérstaklega. Einnig er brýnt að tryggja vægi og aðkomu akademísks starfsfólks að stjórnun spítalans og að efla og formgera tengsl Landspítala og Háskóla Íslands þegar kemur að klínísku vísindastarfi. Innan spítalans starfa fjölmargir öflugir vísindamenn sem þekkja vel til vandans og hvetur Læknaráð framkvæmdastjórn spítalans og stjórnvöld til að nýta reynslu þeirra og þekkingu í að móta þær aðgerðir sem óhjákvæmilega þarf að grípa til,“ segir í ályktun Læknaráðs Landspítala.

Ályktunin er send á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, forstjóra Landspítala, og Ólaf Baldursson, framkvæmdastjóra lækninga á Landspítalanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×