Fjölniskonur snéru leiknum við í þriðja leikhluta | Keflvíkingar unnu stórt Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2021 22:00 Aliyah Daija Mazyck átti stórleik í liði Fjölnis. Vísir/Bára Keflavík og Fjölnir unnu sigra í seinni tveim leikjum kvöldsins í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Fjölniskonur snéru blaðinu við í þriðja leikhluta gegn Grindavík og unnu góðan fimm stiga sigur, 89-84, og Keflvíkingar unnu Breiðablik með 21 stigi, 80-59.
Heimakonur í Fjölni höfðu forystuna lengst af í fyrsta leikhluta, en gott áhlaup gestanna undir lok leikhlutans skilaði þeim sjö stiga forskoti inn í annan leikhlutann. Mikið jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta, en Grindvíkingar fóru inn í hálfleikinn með átta stiga forskot, 61-53. Fjölniskonur spiluðu virkilega vel í þriðja leikhluta og skoruðu 20 stig gegn aðeins átta stigum gestanna. Staðan fyrir lokaleikhlutann var því 73-69, Fjölniskonum í vil. Mikið jafnræði var með liðunum í lokaleikhlutanum, en að lokum voru það heimakonur sem unnu góðan fimm stiga sigur, 89-84. Aliyah Daija Mazyck átti stórleik í liði Fjölnis, en skoraði 32 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þegar Keflvíkingar tóku á móti Breiðablik fyrr í kvöld. Heimakonur voru þó alltaf með yfirhöndina og að loknum fyrsta leikhluta var munurinn fimm stig, 25-20. Áfram héldu Keflvíkingar að auka forskot sitt jafnt og þétt og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 40-32. Keflvíkingar gerðu svo að miklu leiti út um leikinn í þriðja leikhluta, en þá skoruðu þær 19 stig gegn aðeins tíu stigum gestanna. Fjórði leikhluti var svo svipaður fyrri hálfleik þar sem að heimakonur juku forskot sitt lítillega og unnu að lokum öruggan 21 stigs sigur, 80-59.
Íslenski körfuboltinn Subway-deild kvenna UMF Grindavík Fjölnir Keflavík ÍF Breiðablik Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira