Bríet byrjaði tónleikana þannig að hún kom upp úr sviðinu og hélt svo áfram að svífa ofar og ofar. Fyrsta lagið söng hún hangandi í vírum úr loftinu, í kjól sem ætlaði engan endi að taka.Berglaug Petra
Söngkonan Bríet hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Á tónleikunum sýndi þessi listakona enn og aftur hversu ótrúlega hæfileikarík og fjölhæf hún er.
Ef ég væri tónlistargagnrýnir fengi Bríet fullt hús stiga fyrir tónleikana á föstudag. Söngurinn var óaðfinnanlegur að mati blaðamanns og Bríet sennilega aldrei verið betri. Söngkonan spilaði bæði á gítar og píanó á milli þess sem hún heillaði áhorfendur upp úr skónum með sjarma og húmor.
Bríet settist við flygilinn og þá voru myndavélar á henni svo áhorfendur fengu að fylgjast með hverju smáatriði á skjá.Berglaug Petra
Áhorfendur fylgdust agndofa með opnunarlaginu, þar sem Bríet birtist upp úr gólfinu og sveif svo hátt yfir áhorfendur á meðan hún söng og dansaði, föst í víra. Danshæfileikar hennar komu líka mörgum á óvart. Sviðsmyndin var ótrúlega vel heppnuð og tónlistarstjórnin var líka alveg fáránlega flott.
Áhorfendur fylgdust agndofa með Bríet syngja svífandi í loftinu.Berglaug Petra
Saga Garðars kynnti Bríet inn á svið. Hún bauð áhorfendum að taka eins og eina mynd, en eftir það mátti ekki taka neinar myndir á tónleikunum þar sem verið var að taka þá upp fyrir sjónvarpsútsendingu síðar.
Bríet sýndi hversu stórkostlega hæfileikarík hún er og spilaði ýmist á gítar eða flygil á milli þess sem hún dansaði um sviðið og söng.Berglaug Petra
Aron Can átti að vera leynigestur á tónleikunum og taka með henni lagið Feiminn. Þau hafa þekkst alveg síðan í grunnskóla. Aron fékk því miður Covid og gat ekki mætt. Friðrik Dór Jónsson kom þó og tók með henni lagið Hata að hafa þig ekki hér.
Magnús Jóhann tónlistarstjóri sýningarinnar spilaði í turninum en í lokalaginu kom hann niður á sviðið.Berglaug Petra
Eftir uppklapp söng Bríet óútgefið lag, Cold feet. Hún frumsýndi einnig tónlistarmyndbandið við lagið á skjá á sviðinu. Persónulega er ég mjög spennt fyrir því að lagið Cold feet fari í spilun.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir sem ljósmyndarinn Berglaug Petra tók í Hörpu á föstudag.
Bríet var með tónlistarfólk eins og Rubin Pollock, Þorleif Gauk, Magnús Jóhann, Magnús Trygvason og fleiri með sér á sviðinu. Berglaug PetraBríet notaði ekki bara sviðið heldur gekk líka um salinn og söng.Berglaug PetraFriðrik Dór mætti á svið og söng með henni Hata að hafa þig ekki hér. Hann var mjög hás en lét það ekki stoppa sig. "Þú átt það inni hjá mér," sagði hann við Bríet á sviðinu.Berglaug PetraÓtrúlega flottur hópur hljóðfæraleikara og tónlistarfólks tók þátt í verkefninu með Bríet.Berglaug PetraBerglaug PetraTurn hljóðfæraleikaranna var líka vel nýttur sem skjár á meðan tónleikunum stóð. Virkilega flott sviðsmynd, sem gerði upplifunina einstaka fyrir áhorfendur í sal.Berglaug PetraBríet dansaði nútímadans, hoppaði um allt og tók líka heljastökk og handahlaup í einu laginu.Berglaug PetraBríet sat efst í turninum og spilaði Rólegur kúreki. Hún setti auðvitað á sig kúrekahatt fyrir lagið.Berglaug PetraFriðrik Dór og Bríet fífluðust saman á sviðinu áður en þau tóku lagið sitt.Berglaug PetraTurn hljóðfæraleikaranna var líka vel nýttur sem skjár á meðan tónleikunum stóð. Virkilega flott sviðsmynd, sem gerði upplifunina einstaka fyrir áhorfendur í sal.Berglaug PetraNatalie Hamzehpour farðaði Bríet eins og venjulega.Berglaug PetraBríet spilaði á flygilinn með langan slóða á eftir sér. Síðasta lag kvöldsins söng hún sitjandi á gólfinu.Berglaug PetraBerglaug PetraBríet er augljóslega ekki lofthrædd. Eitt lagið söng hún standandi ofan á þriggja hæða turninum á sviðinu.Berglaug PetraListamaðurinn Bríet sýndi á tónleikunum hversu einstakur dansari hún er.Berglaug PetraYfir tvöþúsund Íslendingar sáu Bríet á tónleikunum tveimur á föstudag.Berglaug PetraBríet syngur ofan á turninum á sviðinu. Hún var sem betur fer fest í vír enda hátt fall niður.Berglaug PetraBerglaug PetraUndirrituð hefur séð stjörnur eins og Beyoncé og Lady Gaga á sviði og Bríet gefur þeim ekkert eftir. Hún er einhver blanda af Björk Guðmundsdóttir, Robyn, Loreen og Gaga en er samt alveg einstök.Berglaug PetraHin 22 ára Bríet sagðist þakklát fyrir að fá að kveðja plötuna sína loksins. Platan Kveðja, Bríet hefur fengið ótrúlegar viðtökur.Berglaug PetraBríet söng Esjan í fallegu fjaðrapilsi. Áhorfendar nánast héldu inni í sér andanum á meðan. Salurinn tók svo allur undir í viðlaginu.Berglaug PetraBúningar Bríetar voru einstaklega vel heppnaðir.Berglaug PetraHópurinn á bak við tónleikana.Berglaug Petra