Þegar hin þybbna Salka Valka var sölluð niður Auður Jónsdóttir skrifar 20. október 2021 11:30 Man þegar ég gaf út fyrstu skáldsöguna mína, sirka 24 ára, þá bauð pabbi mér að lesa upp á vinnustaðnum sínum. Ég mætti þangað með Huldari Breiðfjörð og á meðan hann las hlustaði ég á útvarpið, það átti að dæma bækurnar okkar. Man hvernig ég missti máttinn í fótunum við að heyra Kollu Bergþórs rífa bókina mína niður í útvarpi allra landsmanna, svo gagnrýnin að á endanum stundi spyrillinn: Getur hún þá skrifað? Já, það er nú ekki alveg útséð um það – eitthvað í þá veru svaraði Kolla. Mig sundlaði enn þegar ég staulaðist fram fyrir vinnufélaga pabba og man eftir tilfinningunni að ég væri svikin vara. Ég fann til með þeim öllum að hlusta á mig. Mér fannst ég vera feik. Alveg síðan það spurðist út að ég ætlaði að gefa út bók hafði ég reglulega heyrt hvíslað í kringum mig að ég væri bara vesenismanneskja að herma eftir afa mínum. Örfáum dögum síðar vorum við Huldar tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, ég held yngstu kandídatarnir fram að því. Það vakti úlfaþyt, og hvíslið ágerðist að ég hefði fengið þetta út af afa mínum. Guðni Elísson hafði verið í valnefndinni og ég man að hann hringdi í mig og sagði eitthvað í þessa veru: Ekki taka nærri þér þó að allir séu að tala illa um þig! Þú varst ekki tilnefnd út af afa þínum. Á þessum árum var tilfinningahiti í menningarumfjöllun og stundum eins og fólk skiptist í fagurfræðilegar félagslúppur svo kornungt upplifði ungskáld að vera á síðum blaðanna þar sem því var ýmist hrósað eða það rakkað niður – já eða tekist á um það og það borið saman við vini sína. Menningarpólitíkin var meiri. Við vorum nokkur frekar ung þá að gefa út. Mikael Torfason, Guðrún Eva, Steinar Bragi, Stefán Máni, Gerður Kristný, Andri Snær, Huldar og fleiri. Flest upplifðu það líka kornung að verk þess voru stundum sölluð niður á opinberum vettvangi, en þá höfðu dagblöðin ólíkt meira vægi en nú. Ef það birtist vondur dómur í DV las landinn hann og maður þráði að deyja í nokkrar vikur á eftir. Einu sinni fékk ég svo vondan dóm í DV að Silja Aðalsteinsdóttir, þá menningarritstjóri, valdi sérstaklega góða mynd af mér því hún fann til með mér. Fyrir vikið varð dómurinn ennþá stærri. Næstum því síða um hversu hæfileikalaus ég væri og svo þessi flennistóra litmynd! Sami ritdómari reif í sig bók eftir vinkonu mína sama ár, held ég, og ég man við sátum tvær á Mokka og ég var að reyna að telja henni trú um að hún myndi lifa þetta af á meðan hún kreppti höndum utan um kaffibollann með lokuð augu og hvíslaði bara: Ekki tala! Stundum gat þetta verið svo sárt að það var eins og ástarsorg í tíunda veldi. Eftir margra mánaða strit kallaði eitthvað í manni á að vera klappað á bakið en í staðinn beið opinber niðurlæging á síðum dagblaðanna. Ég man eftir að hafa oftar en einu sinni legið eins og frosin og fundist átak að anda eftir svoleiðis salíbunu. Á þessum árum og árin á eftir fékk ég þó reglulega tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og oftar en einu sinni lenti ég í því að tilnefning verks míns varð umdeild, eins og t.d. þegar ég skrifaði fræðibók handa börnum sem var tilnefnd í flokknum fræðibækur og verk almenns eðlis. Á endanum var það orðið svoleiðis um tíma að ég fann fyrir skömm ef ég var tilnefnd. Eins og ég hefði stolið einhverju frá öðrum sem ættu það frekar skilið og allir væru að tala illa um mig. Auðvitað var það gaman, en það var ekki að ástæðulausu sem einhver gerði grín að þybbnu Sölku Völku sem væri í áskrift að tilnefningum. Skömmin átti samt kannski líka rætur að rekja í það að ólíkt skrifandi jafnöldrum mínum hafði ég flosnaði ung upp úr skóla og þrátt fyrir bókmenntalegt bakland þá var mitt eina áunna bakland að hafa verið lestrarormur. Mér fannst ég ekki standa undir því að vera rithöfundur því ég var dropát. Það var alltaf þessi tilfinning, að ég væri að feika. En samt hélt maður áfram að skrifa, og líka hinir, og með tímanum varð til höfundaverk og maður skildi að sitt sýnist hverjum um hverja bók. Einhver gat þakkað manni sundur og saman fyrir bók sem einhver annar hafði rakkað niður. Bók varð að bíómynd eða fékk verðlaun á sama tíma og hún var harkalega gagnrýnd af öðrum. Einn þakkaði manni fyrir kærlega eina bók en sagði að sú á undan eða eftir hefði verið hræðileg. Svo hitti maður einhvern annan sem þakkaði innilega fyrir bókina sem hinum hafði þótt svona afleit. Þegar til dæmis bókin Fólkið í kjallaranum kom út hófst sú vegferð með að hún var sölluð niður í fyrsta blaðadómnum en endaði vertíðina með að fá bókmenntaverðlaunin. Jólabókaflóðið er rússíbani tilfinninga fyrir ungan höfund. Eina ráðið sem ég get gefið höfundum sem eru að byrja að gefa út er að halda áfram að skrifa, þó að þeir fái útreið. Svo margir sem skrifa upplifa annað slagið niðurrif í einhverri mynd. En líka svo margt gott og umfram allt tækifærið til að vera rödd sem skapar sögur úr óreiðu veruleikans. Höfundur er rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bókmenntir Fjölmiðlar Auður Jónsdóttir Mest lesið Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Að hengja prest fyrir biskup, að hengja manneskju fyrir stofnun Hödd Vilhjálmsdóttir Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þetta er ekki allt að koma með fjárlagafrumvarpinu Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir skrifar Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Sjá meira
Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar