Innlent

Fleiri skriður féllu í nótt

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Myndin var tekin í gær.
Myndin var tekin í gær. LANDHELGISGÆSLA ÍSLANDS

Fleiri aurskriður féllu í Þingeyjarsveit í gærkvöldi og nótt. Skriður féllu að bænum Björgum en engir bæir hafa orðið fyrir skriðunum. Almannavarnir funduðu um næstu skref í hádeginu.

Rýmingar hafa verið í gildi í Kinn og Útkinn í Þingeyjarsveit um helgina vegna úrkomu og skriðuhættu og stendur rýming enn yfir. Hermann Karlsson er aðalvarðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

„Það eru að koma í ljós nú strax í morgunsárið skriður sem féllu seinnipartinn í gær og í nótt eftir að myndatökum lauk í gær þannig að það er ljóst að hreyfing er á jarðveginum í fjöllunum. Það gefur til kynna að við þurfum að skoða mjög ígrundað framhaldið hvernig við stígum inn í næsta sólarhring,“ sagði Hermann Karlsson.

Ekkert tjón á húsum, dýrum eða fólki

Hafa skriður fallið á einhverja bæi? 

„Nei það hafa engar skriður fallið á bæi sem slíka. Það fellu skriður alveg heim að Björgum þarna á laugardagskvöldið en ekki inn á bæi. Ekkert tjón á húsi, dýrum eða fólki og engin slys orðin enn og vonum að það verði ekki.“

Sjá einnig: Ó­hugna­nlegt að hlusta á skriðurnar á meðan fjöl­skyldan var inn­lyksa.

Aðgerðarstjórn lögreglunnar á Norðurlandi, Veðurstofan og almannavarnir funduðu í hádeginu þar sem farið var yfir upptökur og gögn frá því í morgun. Ákveðið var að létta ekki á rýmingum.

„Veðurútlitið er að batna en samt er úrkoma í kortunum þannig við þurfum að tengja þetta allt saman.“

Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og á Ströndum vegna úrkomu.

Landhelgisgæslan flaug með sérfræðinga Almannavarna að svæðinu í gær. Myndskeið tekið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar má sjá í fréttinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Sex bæir til viðbótar rýmdir í Kinn

Búist er við aukinni úrkomu á Norðurlandi eystra og því hefur verið ákveðið að rýma sex bæi í Kinn í Þingeyjarsveit vegna skriðuhættu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×