Juventus áfram í vandræðum Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 11. september 2021 15:31 Koulibaly skorar sigurmarkið EPA-EFE/CIRO FUSCO Það voru gestirnir frá Tórínó sem byrjuðu betur en Alvaro Morata kom þeim yfir strax á 10. mínútu leiksins þegar hann vann boltann af varnarmanni og skoraði úr þröngu færi. 0-1 fyrir Juventus og sólin farin að skína. Staðan hélst svona þar til liðin gegnu til búningsherbergja í hálfleik. En Adam var ekki lengi í paradís. Matteo Politano skoraði á 57. mínútu eftir hræðileg mistök hjá markverði Juventus, Wojciech Szczesny. Ekkert sérstakt skot frá Lorenzo Insigne koma Szczesny í mikil vandræði og Politano þakkaði kurteisislega fyrir sig og skoraði. Það var svo Kalidou Koulibaly sem skoraði sigurmarkið eftir hornspyrnu á 85. mínútu. Napoli efst í deildinni með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en Juventus er í tómum vandræðum með eitt stig. Fótbolti Ítalski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn